Ilmur af heitu súkkulađi lá í loftinu ţegar dagskráin hófst međ almennum söng "Viđ kveikjum einu kerti á". 
Ţá var fluttur "Lítill jötuleikur" (Höf: Susanne Baadh / ísl. ţýđ: Sig. Ingólfsson)
Ţar stigu á sviđ 3. - 6. bekkur og flutti á ógleymanlegan hátt djassskotinn helgileik undir stjórn Önnu Björnsdóttur.
Sr. Haraldur M. Kristjánsson las jólasögu "Piparkökurnar hennar Maríu meyjar" eftir Edith Unnerstad.
Ţórhildur St. Kristinsdóttir (dóttir Kristins tónskólastjóra) lék á píanó Í bljúgri bćn.
Gítarjólarokk
skemmtileg útsetning á ýmsum jólalögum var í flutningi ţeirra feđga Kristins og Ragnars.
Meiri snjór og Hringi klukkurnar í kvöld rokkuđu Björn Ţór Ólafsson á gítar, Guđm. Kristinn Haraldssson á trommur og Sölvi Hrafn Sveinsson á gítar.
Sameiginlegur kór Skeiđflatar- og Víkurkirkju undir stjórn Önnu Björnsdóttur flutti Fjárhús lágt, Jól yfir borg og bć og Á dimmri nóttu, í ţví lagi lék Andrína Erlingsdóttir undir á ţverflautu sem setti óneitanlega glćsilegan svip á lagiđ.
Undirleikari á píanó var Kristín Björnsdóttir.
    Sr. Haraldur var međ ritningarlestur og bćn og var síđan endađ međ almennum söng Nóttin var sú ágćt ein.
Ađ lokinni dagskrá var viđstöddum bođiđ ađ ţiggja veitingar í bođi allra kirkna og kvenfélaga í Mýrdal.
Eftir veitingar og spjall var gengiđ út til ađ kveikja á jólatré okkar Mýrdćlinga sem nú er stađsett á grasblettinum sunnan viđ KB banka.
    Margmenni var á hátíđinni og gaman ađ sjá hve margir sáu sér fćrt ađ koma og njóta góđrar stundar.