Kvenfélag
Hvammshrepps
Jæja
þá er komið að spilakvöldunum okkar árlegu og eins og venjulega mun allur ágóði
frá þeim renna til Björgunarsveitarinnar Víkverja. Fyrsta kvöldið
okkar verður fimmtudaginn 29. janúar og munu þau öll hefjast
kl.
19:50, annað kvöldið verður fimmtudaginn 5. febrúar, þriðja kvöldið
verður fimmtudaginn 19. febrúar og svo fjórða og síðasta kvöldið verður
fimmtudaginn 26. febrúar. Eins og það hefur verið munu hæstu þrjú
kvöldin gilda. Við munum vera aftur á Halldórskaffi. Vonumst til að
sjá bara sem flesta.
Mjög gott að komast aðeins út og lyfta sér upp í kreppunni.
Prjónakaffihúsið
byrjar aftur á nýjan leik á nýju ári. Fyrstu kvöldin munu vera
fimmtudaginn 22. janúar og svo aftur
12. febrúar og verða þau
kl. 20:30.
Og eins og fyrir áramót munum við vera á Halldórskaffi og þiggjum veitingar hjá
Kollu Ósk.
Og
síðast en ekki síst er það Þorrablót aldraðra sem verður haldið
laugardaginn 31. janúar kl. 12:00 á hádegi og verður það einnig á
Halldórskaffi.
Við viljum vekja athygli á því að allir sem eru 60 ára og eldri eru velkomnir að
mæta og eiga góða stund með okkur.