Rætt verður um aðkomu Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og fleiri stofnana að frekari þátttöku í sýslunum með aðaláherslu á korn og jarðrækt m.a. hagsmunaaðilar og áhugamenn í sýslunum standa að málþinginu með þátttöku sveitarstjórna Rangárþings eystra, Rangárþings ytra, Ásahrepps, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps.
Framsögur á málþinginu hafa:
Ágúst Sigurðsson rektor Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri
Ólafur Eggertsson oddviti og bóndi á Þorvaldseyri
Áslaug Helgadóttir prófessor
Sveinn Runólfsson Landgræðslustjóri
Stjórnandi málþingsins í Skógum verður Árni Johnsen alþingismaður
Hugmyndin með málþinginu er að skerpa línur í atvinnumöguleikum þessara tveggja sýslna, efla og styrkja innlenda sýn og framleiðslu, margháttaða uppbyggingu, þróun, fullvinnslu, nýjungar og bregðast við þeim vanda sem nú blasir um stund við Íslendingum með því að skera upp herör til árangurs og bjartsýni. Áhugamenn nær og fjær eru hvattir til að mæta en allir eru velkomnir á Skógamálþingið.
Áfram Ísland