Tökum nú höndum saman!!
Mætum og upplifum gamla, góða stemningu.
Laugardaginn 27. desember verður flautað til leiks
í íþróttahúsinu í Vík
Munu þar mætast Úrvalslið Umf. Drangs (þetta gamla góða) og blandað lið nokkurra
valinkunnra körfuknattleiksmanna af Suðurlandi.
Tilefnið er að leggja góðu málefni lið og
verður leikur þessi tileinkaður baráttujaxlinum Jóni Þór Gunnarssyni sem mun
verða verndari söfnunarinnar og mun ánafna sínu hugðarefni "Ljósinu" alla afkomu
dagsins.
Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið
krabbamein / blóðsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Markmið Ljóssins er að
efla lífsgæðin með því að styrkja andlegan, félagslegan og líkamlegan þrótt.
Mun leikurinn fara fram kl. 15:00 og vonum við að
sem flestir sjái sér fært að koma og leggja góðu málefni lið.
Aðgangseyrir verður 1000 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn.
Að sjálfsögðu eru frjáls framlög mjög vel þegin.