Kór Menntaskólans viđ Hamrahlíđ verđur í tónleikaferđ á Suđurlandi dagana 19.- 21.apríl.

Kórinn heldur almenna tónleika í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli laugardaginn 19.apríl kl.14.

Sunnudaginn 20.apríl syngur kórinn messu í Víkurkirkju međ séra Haraldi M.Kristjánssyni prófasti.
Messan hefst kl.11. Á sunnudagskvöld heldur kórinn tónleika í Prestbakkakirkju á Síđu kl.21.

Mánudaginn 21.apríl heldur kórinn ţrenna skólatónleika, fyrir Grunnskóla Mýrdalshrepps, Laugalandsskóla í Holtum og skólana á Laugarvatni. Á mánudagskvöld heldur kórinn afmćlistónleika í tilefni af 50 ára afmćli Laugalandsskóla í Holtum.

Á efnisskrá kórsins í ţessari ferđ eru íslensk og erlend verk m.a.eftir J.S.Bach, William Byrd, Atla Heimi Sveinsson, Jón Ásgeirsson, Jón Nordal, Jón Ţórarinsson, Pál Ísólfsson og Ţorkel Sigurbjörnsson auk ţjóđlaga frá ýmsum löndum. Í nokkrum verkanna leika kórfélagar međ á hljóđfćri.

Á ţessari vorönn er Kór Menntaskólans viđ Hamrahlíđ skipađur 80 nemendum á aldrinum 16 - 20 ára.
Stjórnandi kórsins er Ţorgerđur Ingólfsdóttir, stofnandi kórsins og upphafsmađur kórstarfsins í Hamrahlíđ, en hún stjórnar einnig Hamrahlíđarkórnum (sem er skipađur eldri nemendum).

Rektor Menntaskólans viđ Hamrahlíđ, Sigurborg Matthíasdóttir og konrektor, Guđlaugur Pálmi Magnússon eru međ kórnum í ferđinni.