Fýlaveisla
verður haldin á Ströndinni bistro-bar v/Víkurskála
laugardagskvöldið 8.nóvember n.k.
Á boðstólum verður fýll, saltaður og soðinn, kartöflur, rófur og smjör.
Og til uppfyllingar verður boðið uppá hangikjöt og uppstúf.
Árni Johnsen mun sjá um veislustjórn og svo verður lifandi tónlist fram á nótt.
Komum saman, borðum og skemmtum okkur að gömlum sið.
Miðaverð í veisluna er 3.500.- pr.mann
Tilboð er á gistingu fyrir þá sem koma lengra að.
Borðapantanir fyrir miðvikudaginn 5. nóvember og upplýsingar eru í síma: 487-1230.