Jól í skókassa

 

Nemendur í 3. og 4. bekk ætla að taka þátt í verkefninu jól í skókassa og biðja aðra í skólanum að hjálpa til.

 

Verkefnið felst í að senda gjafir í skókössum til bágstaddra barna í Úkraínu. 

 

Við gerum þetta þannig að við söfnum skókössum pökkum þeim inní jólapappír, passa að pakka lokinu sér svo hægt sé að opna pakkann. Ákveða þarf fyrir hvaða aldurshóp gjöfin á að vera, strák eða stelpu 2 – 4 ára, 5 – 9 ára eða 10 – 14 ára og merkja með miða á lokið.  Í kassana setjum við t.d. ritföng, föt, leikföng, hreinlætisvörur og sælgæti.  Best er að setja einn hlut úr hverjum flokki í kassann.  Síðan látum við fylgja með 300 – 500 kr,. í sendingarkostnað.

 

Þið sem viljið hjálpa okkur við þetta getið hvort sem er skilað fullbúnum kassa til okkar í skólann, eða komið til okkar tómum skókössum og dóti til að setja í þá.

 

Við þurfum að skila gjöfunum í síðasta lagi laugardaginn 11. nóvember til KFUM og KFUK í Reykjavík.

 

Við vonumst til að geta sent margar gjafir til að gleðja börnin í Úkraínu.

 

Nemendur í 3. og 4. bekk

og

Kolbrún Hjörleifs