FABLAB ( Fabrication Laboratory) er stafræn smiðja með tækjum og tólum til að búa til nánast hvað sem er. Nýsköpunarmiðstöð Íslands setti upp Fab Lab smiðju í Vestmannaeyjum sumarið 2008. Fab Lab smiðjan gefur ungum sem öldnum, einstaklingum og fyrirtækjum, tækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna og hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd með því að hanna, móta og framleiða hluti með aðstoð stafrænnar tækni. Markmiðið er að auka þekkingu á persónumiðaðri framleiðslu, stafrænum framleiðsluaðferðum í iðnaði og efla nýsköpun á Íslandi. Einnig að auka tæknilæsi almennings og almenna tæknivitund ásamt því að skapa vettvang fyrir nýsköpun og efla samkeppnishæfni iðnfyrirtækja, menntastofnana og nemenda.
Nemendur GsM hafa góða undirstöðu í nýsköpunnarvinnu og eru að vinna að frábærum hugmyndum sem gaman verður að láta lifna við í smiðjunni.
Starfsmenn smiðjunnar sýndu strax mikinn áhuga á samstarfi og buðu okkur á kynningu, þegar ég fór þess á leit við þá, jafnframt sendu þeir okkur gestakennara í síðustu viku til að kenna á hugbúnað og undirbúa heimsóknina. Upplýsingar um smiðjuna er hægt að nálgast á www.fablab.is og www.fablab.is/video