Heilsu- og ævintýradagur 7. - 8. bekkjar


Það verður heilsu- og ævintýradagskrá á annan í hvítasunni, 12. maí n.k. í Íþróttamiðstöðinni frá kl. 11:00 til 15:30.

Við í 7. - 8. bekk erum í verkefni sem heitir "Reyklaus bekkur" og þetta er annað verkefnið okkar.  Boðið verður upp á ýmsar þrautir og leiki.  Jafnframt verður smökkun á "íþróttanammi"  Dagskráin er fyrir alla aldurshópa, unga sem aldna.

Hjálpið okkur að gera frábæran dag.

Þeir sem vilja vera allan daginn þurfa að taka með sér hollt og gott nesti

Kær kveðja,

Alda, Alexandra, Birkir, Einar, Emilía, Friðbert, Guðlaug, Ingibjörg, Jóna, Kristín, Magdalena, Magnús, Ragnar, Sólon, Vigdís og Þór.