USVS auglýsir
-Knattspyrna & körfubolti-
Seinni umferð í innanhúsmóti USVS í knattspyrnu verður í Vík laugardaginn 17. febrúar og hefst kl. 10:00. Fyrst verður keppt í yngsta flokki en tvö lið eru skráð frá Ármanni og tvö lið frá Drangi/Dyrhólaey. Síðan spila stelpurnar í 7.-10. bekk þá strákarnir í 7.-10. bekk og að lokum karlarnir.
Einnig verður seinni umferðin í körfunni afgreidd á laugardaginn en einungis tveir leikir verða spilaðir. 3.-6. bekkur Drangur/Dyrh gegn Ármanni blönduð lið og í 7.-10. bekk keppa Drangur/Dyrh gegn Ármann einnig blönduð lið.
Keppni hefst stundvíslega kl. 10:00.
Leikjaröð verður birt á heimasíðu USVS www.usvs.is . Þar verður einnig birt uppröðun á liðum í 3.-6.bekk frá fyrri umferðinni.
Allir sem vettlingi geta valdið mæti í Íþróttahúsið í Vík á laugardag
að styðja sitt fólk!


USVS