Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ setti 11. Unglingalandsmótið í
Þorlákshöfn í glæsilegri setningarathöfn að viðstöddu miklu fjölmenni. Keppendur, sem voru
um 1200 talsins, gengu fylktu liði inn á völlinn í mildu veðri.
Innganga félaga USVS var hin glæsilegasta og fyllti marga stolti. Hlerað hefur
verið að USVS hafi verið eitt af þremur samböndum sem báru af hvað varðar
heildarmynd og prúðmennsku. Þorsteinn Björn Einarsson bar skilti
USVS fremstur í fylkingunni og fánaberi var Sveinn Þórðarson með dyggri aðstoð
Breka Þórs Sveinssonar og Guðmundar Elíassonar.
Yngstu félagarnir gengu svo á eftir fánabera og gönguna ráku svo yfirsmalarnir
Svanhvít M. Sveinsdóttir og Inger Schiöth.
Keppendur stóðu sig frábærlega alla helgina. Og flestir bættu sín persónulegu
met. Veðrið var með besta móti, föstudagurinn bar með sér sól og blíðu en svo
dró fyrir sólu en blíðan hélst að mestu.
USVS gat lagt HSK lið í starfsmannamálum og stóðu Þorgerður Einarsdóttir og
Sædís Íva Elíasdóttir vaktina í skráningu úrslita alla helgina. Sveinn
Þórðarson var gerður að langstökksstjóra og Inger Schiöth hljóp í nafnakallið og
langstökkið. Skorað var á Jóhann V. Hróbjartsson að vinna með spjótkastinu á
sunnudeginum og var hann ekki lengi að taka við sér.
Unglingalandsmótin eru hreint og klárt komin til að vera.
Ljósmyndir: Guðný Sigurðardóttir