Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ setti 10. Unglingalandsmótið á Sindravelli í
glæsilegri setningarathöfn á Sindravelli að viðstöddu miklu fjölmenni. Auk hans
fluttu ávörp Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, Hjalti Vignisson, bæjarstjóri á
Hornarfirði, og Ragnhildur Einarsdóttir, formaður USÚ. Össur Skarphéðinsson,
iðnaðarráðherra, var einnig viðstaddur setningarathöfnina. Keppendur, sem voru
um eitt þúsund, gengu fylktu liði inn á völlinn í mildu veðri.
Innganga félaga USVS var hin glæsilegasta og fyllti marga stolti. Hlerað hefur
verið að USVS hafi verið með langflottasta liðið. Fjóla Sigmarsdóttir bar skilti
USVS fyrst í fylkingunni og fánaberi að þessu sinni var Sveinn Þórðarson með
dyggri aðstoð þeirra Þorsteins Björns Einarssonar og Þorgeirs Guðnasonar.
Yngstu félagarnir gengu svo á eftir fánabera og gönguna ráku svo yfirsmalarnir
Grétar Einarsson og Jóhann Vignir Hróbjartsson. Steinn Orri Erlendarson var svo
fenginn til að vera fánaberi landsmótsfánans.
Veðurspáin lofaði ekki góðu í upphafi ferðalags en það rættist heldur betur úr
henni. Krakkarnir stóðu sig frábærlega alla helgina, strekkingsvindur og
kuldi hamlaði þeim þó eitthvað á sunnudeginum.
Til stóð að hópurinn hittist allur á laugardagskvöldinu í leikjum o.þ.h. en rok
hamlaði þeim áformum
Um árangur krakkanna okkar má lesa á umf.vik.is