Fréttir af Sambandsþingi UMFÍ

 

45. sambandsþing UMFÍ var haldið á Þingvöllum dagana 20.-21. október á 100 ára afmæli Ungmennafélags Íslands.  Þingið var sett í Almannagjá að viðstöddum góðum gestum.  Herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands ávarpaði þingfulltrúa og gesti og Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ sæmdi Björn B. Jónsson gullmerki ÍSÍ.  Þingið sátu 104 fulltrúar héraðssambanda, ungmennasambanda og félaga með beina aðild við UMFÍ.  Þingið var mjög starfsamt og margar tillögur samþykktar frá þinginu.  Í ársskýrslu félagsins kemur fram að UMFÍ starfar að mjög mörgum málaflokkum.  Má þar nefna verkefni svo sem:  Fjölskyldan á fjallið, Göngum Ísland, tómstundabúðir að Laugum í Sælingsdal, Flott án fíknar, Unglingalandsmót og Landsmót, útgáfa Skinfaxa, Þrastarskógur, Leiðtogaskólinn og margt fleira. USVS átti rétt á að senda  3 fulltrúa á þingið og það voru þær Inger Schiöth stjórnarmaður í USVS, Sædís Íva Elíasdóttir f.v formaður USVS og Þorgerður Einarsdóttir f.v framkvæmdastjóri USVS.  Efir því var tekið að USVS var eina sambandið þar sem að konur fylltu fulltrúafjöldann.  Nýr formaður UMFÍ var kjörin á þinginu, Helga Guðrún Guðjónsdóttir.  Hún er fyrsta konan til að gegna þessu embætti í 100 ára sögu félagsins.  Aðrir í stjórn eru Ásdís Helga Bjarnadóttir varaformaður, Björn Ármann Ólafsson gjaldkeri,  Hringur Hreinsson  meðstjórnandi, Einar Haraldsson meðstjórnandi,  Björg Jakobsdóttir meðstjórnandi og Örn Guðnason meðstjórnandi.  Í varastjórn eru Haraldur Jóhannsson, Eyrún Harpa Hlynsdóttir, Jóhann Tryggvason og Einar Jón Geirsson.  Sæmundur Runólfsson er framkvæmdastjóri UMFÍ.
 


Texti: Þorgerður Einarsdóttir