Vaxtarsprotar
Nýtt þróunarverkefni til að efla atvinnulíf í sveitum
Impra nýsköpunarmiðstöð og Framleiðnisjóður landbúnaðarins, í samvinnu við Búnaðarsamband Suðurlands og Atvinnuþróunarfélag Suðurlands, munu í næstu viku ýta úr vör nýju þróunarverkefni. Verkefnið, sem nefnt er Vaxtarsprotar, hefur það að markmiði að hvetja og styðja við fjölbreytta atvinnusköpun í sveitum.
Grundvöllur verkefnisins
Með verkefninu vilja aðstandendur verkefnisins hvetja fólk til að koma auga á atvinnutækifæri í heimabyggð. Þátttakendum í verkefninu stendur til boða margvíslegur stuðningur til þess að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd. Þátttaka í verkefninu verður án endurgjalds. Lykilspurningar sem þátttakendur í verkefninu munu leita svara við eru m.a: Eru ónýtt atvinnutækifæri í næsta nágrenni? Hvað get ég gert til að auka tekjur mínar og/eða bæta atvinnumöguleika mína með eigin atvinnurekstri? Hvernig á ég að fara að því og hvað mun ráða úrslitum um árangur? Verkefnið er opið öllum íbúum í sveit á Suðurlandi, óháð eðli viðskiptahugmynda, atvinnugreinum sem viðskiptahugmyndir beinast að, eða reynslu þátttakenda á sviði atvinnurekstrar.
Margs konar stuðningur í boði
Verkefnið byggir á ákveðnu ferli sem í hnotskurn má lýsa á eftirfarandi hátt:
1. Hvatning og kynning á þeim möguleikum sem í verkefninu felast
2. Aðstoð við hugmyndavinnu
3. Fræðsla og handleiðsla við undirbúning viðskiptahugmynda (bæði á námskeiðaformi og einstaklingsmiðuð fræðsla)
4. Fjárstyrkur til undirbúningsvinnu
5. Fjárstyrkur til framkvæmda
6. Eftirfylgni og áframhaldandi handleiðsla
Þátttakendur njóta handleiðslu ráðgjafa Impru nýsköpunarmiðstöðvar á verkefnistímabilinu en slík þjónusta er hluti af reglulegri starfsemi Impru og er án endurgjalds. Einnig munu ráðunautar og atvinnuráðgjafar í einhverjum tilfellum koma að verkefnum þátttakenda.
Upphaf verkefnisins
Verkefnið hefst með kynningar- og hvatningarfundum. Haldnir verða tveir fundir á Suðurlandi þar sem í boði verða áhugaverð erindi sem vakið geta fólk til umhugsunar um umhverfi sitt og þau tækifæri sem kunna að vera fyrir hendi. Á fundunum verður verkefnið sjálft einnig kynnt. Fyrirlesarar verða:
Kynningarfundirnir verða haldnir á eftirfarandi stöðum:
· Félagsheimilinu Þingborg Árnessýslu, þriðjudaginn 30. janúar 2007, kl. 20:30.
· Veitingaskálanum Hlíðarenda Hvolsvelli, fimmtudaginn 1. febrúar 2007, kl. 20:30.
Nánari upplýsingar
Frekari upplýsingar um verkefnið veitir Elín Aradóttir, verkefnisstjóri hjá Impru nýsköpunarmiðstöð,
í síma 460 7970 eða í gegnum tölvupóst (elina@iti.is).