Menningarráð
Suðurlands
Úthlutunarreglur vegna
verkefnastyrkja
Menningarráðs Suðurlands til menningarmála 2007
1. Tilgangur styrkjanna er, skv. samningi sveitarfélaga á Suðurlandi og menntamálaráðuneytisins og samgönguráðuneytis, að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Suðurlandi.
2. Umsækjendur geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi.
3. Umsækjendur verða að geta sýnt fram á fleiri fjárhagslega bakhjarla en Menningarráð Suðurlands. Styrkir ráðsins geta aldrei verið hærri fjárhæð en sem nemur helmingi alls kostnaðar við verkefni.
4. Með umsókninni verður að fylgja greinargóð lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímasetningum, ítarleg fjárhagsáætlun (kostnaðar- og tekjuáætlun) og upplýsingar um aðstandendur.
5. Umsækjandi ábyrgist að fullnægjandi leyfi séu fyrir framkvæmd verkefnis og notkun heimilda ef þarf, sem og öðrum þáttum verkefnisins.
6. Menningarráð Suðurlands og styrkþegi gera með sér sérstakan samning sem m.a. kveður á um fyrirkomulag greiðslu, lokaskýrslu og eftirfylgni.
7. Menningarráðið mun ekki veita rekstrar-, stofnkostnaðar- eða endurbótastyrki. Ekki verður heldur styrkt skráning á menningarminjum, starfsemi íþróttafélaga, bæjarhátíðir, almennar samkomur, safnaðarstarf og hefðbundið menningarstarf innan skóla.
8. Styrkþegi skal skila skriflegri lýsingu ( lokaskýrslu ) á framkvæmd og árangri verkefnisins. Að öðru leyti ber styrkþega að veita Menningarráði Suðurlands upplýsingar um framkvæmd verkefnisins þegar og ef eftir því er leitað.
9. Umsóknir þurfa að vera á eyðublöðum frá Menningarráðinu og póststimplaðar eigi síðar en síðasta umsóknardag.
10. Auglýst skal eftir styrkumsóknum í febrúar og fer úthlutun fram í mars.
12. Ákvæði til bráðabirgða: Auglýst skal eftir styrkumsóknum í október og fer úthlutun fram í nóvember 2007
Menningarráð Suðurlands 8.október 2007