Umf. Drangur
Áríðandi tilkynning til stuðningsmanna Drangs
Eins og mörgum er kunnugt var fyrsti
“leikur” vetrarins í körfubolta í það minnsta skrautlegur.
Engir dómarar mættu á svæðið af ástæðum sem stjórn Drangs hefur enn ekki fengið
fullnægjandi útskýringar á. Þó hefur komið í ljós að Dómaranefnd KKÍ hafði
ekki skipað neina dómara á þennan né aðra leiki Drangs í Vík af óskiljanlegum
ástæðum.
Tekið var til þess ráðs eftir spjall milli forráðamanna félaganna tveggja (ÍBV og Umf.D) að reyna að leysa málið. Fengnir voru líklegustu menn á staðnum til að dæma leikinn og þakka ég þeim sérstaklega vel fyrir. Þrátt fyrir góða frammistöðu þeirra var fljótt ljóst að ekki var sátt um þetta innan vallar og var þá leiknum hætt áður en allt upp úr siði. Voru bæði liðin að lokum sátt um þessi málalok og verður að finna út nýja dagsetningu fyrir þennan leik í samvinnu Mótanefndar KKÍ. Bíð ég enn formlegra viðbragða KKÍ sem ég hef rætt þessi mál við nú strax eftir liðna helgi. Þó hefur framkvæmdarsjóri Körfuknattleikssambandsins gengist við mistökum þessum og kveðst harma þau mjög.
Hvað ykkur áhorfendur og okkar dyggu stuðningsmenn varðar vona ég að þetta hafi ekki mikil áhrif. Stjórn Drang vonar að liðið njóti áfram ykkar ómetanlega stuðnings sem ekki verður of oft þakkaður.
Næsti leikur liðsins eru settur á laugardaginn 4.nóv í Vík gegn Hrunamönnum sem eru með geysisterkt lið og mun Drangur tefla fram sínu sterkasta liði.
Frítt verður inn á þennan leik !
Einnig er leikur í Vík mánudaginn 6.nóv. þá gegn Laugvetningum sem einnig verður baráttuleikur.
Vonandi sjáum við sem flesta á vellinum
Áfram Drangur
Formaður Umf. Drangs