Embætti sýslumannsins í Vík hefur tekið að sér
að færa bókhald nokkurra sendiráða fyrir hönd utanríkisráðuneytisins.
Þetta verkefni felst í færslu bókhalds sendiráðanna í bókhaldskerfi ríkisins,
merkingu fylgiskjala og afstemmingu reikninga. Ragnheiður Högnadóttir aðalbókari
embættisins, sem hefur yfirumsjón með verkinu, er þegar byrjuð færslu bókhalds
fyrir sendiráð Íslands í Ottawa og skrifstofu Íslands hjá NATO í Brussel.
Í næsta mánuði er fyrirhugað að sendiráðið í Tókýó bætist í hópinn og um mitt ár
mun líklega sendiráð Íslands í London bætast við. Verkefnið hefur hingað til
gengið vel og byggir það á góðri þekkingu starfsmanna á færslu bókhalds
ríkisins, góðri samvinnu við utanríkisráðuneytið og góðu internetsambandi.
Í tengslum við þetta verkefni þarf embættið að bæta við sig starfsmanni og mun
verða auglýst eftir umsóknum í 50 % starf aðstoðarmanns bókara. Í tengslum við
þetta verkefni hefur starfshlutfall annarra starfsmanna aukist og er því
fyrirsjáanlegt að 5,5 stöðugildi verði við embættið og það er aukning um 2 á
síðustu 2 árum. Ef verkefnið gengur vel er ekki útilokað að enn fleiri sendiráð
muni bætast í hópinn og þörf verði fyrir fleiri starfsmenn.