Landbúnaðarháskóli Íslands og Matís ohf. hafa leitað leiða til að nýta íslenskt bygg til manneldis og það er Framleiðnisjóður landbúnaðarins sem hefur styrkt þetta starf. Á dögunum var efnt til málþings um verkefnið í Reykjavík og nú verður blásið til samskonar þings sem að þessu sinni verður haldið í Skógarskóla undir Eyjafjöllum. Málþingið verður miðvikudaginn 3. desember og stendur frá kl. 13.00 til 14.30. Allir eru velkomnir á málþingið sem er haldið undir yfirskriftinni Möguleikar til nýsköpunar á eystri hluta Suðurlands. Fundarstjóri er Áslaug Helgadóttir prófessor LbhÍ. Ólafur Reykdal (Matís) fjallar um verkefnið, næringargildi og öryggi, en Aðalheiður Ólafsdóttir (Matís) ræðir um brauðvörur úr byggi. Þá mun Guðmundur Mar Magnússon, bruggmeistari Ölgerðarinnar, ræða um íslenska bjórinn. Allir sem áhuga hafa eru boðnir velkomnir á málþingið.
Afar góð byggbrauð – úr íslensku byggi
“Prófanir hafa verið gerðar á framleiðslu byggbrauða, byggmalts og bjórs. Bygg úr ræktunartilraunum Landbúnaðarháskólans og frá bændum var rannsakað með tilliti til næringargildis og öryggis til manneldis. Góður árangur náðist við framleiðslu byggbrauða og tókst að framleiða brauð með allt að 40% af byggmjöli á móti hveiti. Framleidd voru 600 kg af malti úr íslensku byggi og var maltið síðan notað til að framleiða bjór. Þeir sem bragðað hafa á bjórnum eru sammála um að hann sé ágætur og vel hafi tekist til í þessari tilraun. Mælingar á efnainnihaldi íslenska byggsins benda til að það henti til manneldis. Ýmsir möguleikar eru á notkun byggs og byggmjöls í matvælaiðnaði. Verðhækkanir á innfluttri mjölvöru gætu stuðlað að því að gera íslenskt bygg samkeppnishæfara en áður,” segir á heimasíðu Matvæla- og næringarfræðafélags Íslands.
Miklar framfarir
Miklar framfarir hafa orðið í kynbótum og ræktun byggs hér á landi. Byggið hefur
fyrst og fremst verið nýtt sem skepnufóður en áhugi á nýtingu þess til manneldis
hefur farið vaxandi. Það er ekki síst vegna þess að meira er af trefjaefnum í
byggi en hveiti. Frá manneldissjónarmiði er mikilvægt að auka magn trefjaefna í
fæði Íslendinga. Það er sérstaklega áhugavert að í bygginu eru vatnsleysanleg
trefjaefni sem kallast beta-glúkanar. Þessi trefjaefni geta lækkað kólesteról í
blóði og haft dempandi áhrif á blóðsykur. Hægt er að auka hollustu brauðvara með
því að nota að hluta til bygg í staðinn fyrir hveiti. Það er því hægt að mæla
með því að bökunariðnaðurinn fari að nota bygg í framleiðslu sína.