Mýrdalshreppur

Efnisyfirlit

Fréttir / á döfinni

 >

Stjórnsýslan

Náttúran

Sagan

Ferðaþjónusta

Myndir

 


 

 

 

 

 

 
 
 


Skipulags- og byggingarmál

 

03.05.2010
Skipulagsstofnun hefur sent umhverfisráðherra aðalskipulag til staðfestingar

29.03.2010
Tillaga að aðalskipulagi samþykkt af sveitarstjórn

 

 

 

 

22.12.09
Tillaga að aðalskipulagi auglýst:

23.09.09
Tillaga að aðalskipulagi send Skipulagsstofnun
Tillaga að aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2009-2025 var kynnt á almennum íbúafundi sem var haldinn í Vík 10. september 2009. Á fundi sveitarstjórnar Mýrdalshrepps  17. september sl. var skipulagstillagan til fyrri umræðu og var samþykkt að senda hana til athugunar hjá Skipulagsstofnun með óskum um heimild til að auglýsa hana skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga.

Neðangreind gögn fylgja með erindinu til Skipulagsstofnunar:

Skipulagsstofnun hefur 4 vikur til að gera athugasemdir við tillöguna.  Gert er ráð fyrir að tillagan verði auglýst að lokinni athugun stofnunarinnar.

17.06.09
Tillaga að aðalskipulagi í umsagnarferli
Tillaga að aðalskipulagi, greinargerð, uppdrættir og umhverfisskýrsla hefur nú verið send lögformlegum umsagnaraðilum.  Þessir aðilar eru Siglingastofnun, Landbúnaðarráðuneyti, Vegagerðin, Flugmálastjórn, Umhverfisstofnun, Fornleifavernd ríkisins, Heilbrigðiseftirlit suðurlands, Skipulagsnefnd kirkjugarða, Landgræðslan, Almannavarnarnefnd og nágrannasveitarfélög.  Óskað er eftir að umsagnir berist fyrir 10. júlí n.k.

Gögnin eru aðgengileg hér.

  Greinargerð

  Sveitarfélagsuppdráttur

  Þéttbýlisuppdráttur

  Umhverfisskýrsla 

 

 

 

14.01.08
Aðalskipulag 2005-2025,  Kynningarfundur 21. janúar 2008
Mánudaginn 21. janúar n.k. verður haldin kynningarfundur um tillögu að aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2005-2025.  Fundurinn verður haldinn í félagsheimilinu Leikskálum og hefst kl. 20.00.
Allir eru velkomnir.

Drög að greinargerð má nálgast hér (1,67 MB)

Drög að sveitarfélagsuppdrætti má nálgast hér (3,29 MB)

Drög að þéttbýlisuppdrætti má nálgast hér (1,11MB)

Drög að umhverfisskýrslu má nálgast hér

 

 

Aðalskipulag 2005-2025 - tillaga í smíðum
29.06.2007
Skipulags- og byggingarnefnd og sveitarstjórn hafa nú ákveðið hvaða veglína verði færð inn á aðalskipulagstillögu.

Kort sem lá til grundvallar við umræður í nefndunum má sjá hér...

Bókun skipulags- og byggingarnefndar 21.06.2007

Bókun sveitarstjórnar 28.06.07

Skipulagsráðgjafi lýkur nú gerð aðalskipulagstillögu og vonast má til að hún verði hæf til auglýsingar á haustmánuðum.  Almenningur fær þá möguleika að að gera athugasemdir við tillöguna eins og lög gera ráð fyrir.

 

31.03.2006
Skipulags- og byggingarnefnd hefur nú mótað tillögu um nýja veglínu um Mýrdal að fengnum umsögnum sem borist hafa þ.m.t. umsögnum Vegagerðar og Umhverfisstofnunar.  Gera má ráð fyrir að í tillögu að aðalskipulagi sem brátt verður tilbúin til auglýsingar verið veglínan í líkingu við þessa. 

Áréttað skal að málið er á umræðustigi - formleg tillaga hefur ekki litið dagsins ljós.  Tillaga að aðalskipulagi verður formlega auglýst þegar hún verður tilbúin að mati skipulags- og byggingarnefndar, sveitarstjórnar og Skipulagsstofnunar.  Íbúum og öðrum áhugasömum gefst þá kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna.

Hinar nýju tillögur má skoða hér:     Vegur um Mýrdal - tillaga 5         Vegur um Vík - tillaga 3       

Eldri hugmyndir eru hér að neðan.

Vegur um Mýrdal - tillaga 1
Vegur um Mýrdal - tillaga 2
Vegur um Mýrdal - tillaga 3

Vegur um Mýrdal - tillaga 4
Vegur um Mýrdal - tillaga 5

Vegur um Vík - tillaga 1
Vegur um Vík - tillaga 2
Vegur um Vík - tillaga 3

Sveitarfélagsuppdráttur - drög
Þéttbýlisuppdráttur - drög

 

Texti frá nóv 2005
Unnið hefur verið að gerð aðalskipulags fyrir Mýrdalshrepp um alllangt skeið og hefur Benedikt Björnsson skipulagsráðgjafi séð um þá vinnu ásamt skipulags- og byggingarnefnd.  Tillaga að aðalskipulagi 2002-2022 hefur verið auglýst og var nánast tilbúin til lokaafgreiðslu en sveitarstjórn ákvað að láta gera tillögu að nýrri legu Hringvegar um Mýrdal þannig að hann færi um jarðgöng í gegnum Reynisfjall.  Þar sem um er að ræða verulega breytingu frá fyrri tillögu hefur verið ákveðið að tillagan verði auglýst að nýju skv. skipulags- og byggingarlögum og gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna.  Tillagan verði jafnframt uppfærð og taki til tímabilsins 2005-2025.

Á almennum fundi í Leikskálum 14. nóvember s.l. voru kynntar nokkrar hugmyndir að legu nýs vegar um Mýrdal og óskað eftir umsögnum um þær og jafnframt nýjum hugmyndum.  Nokkrar umsagnir bárust og einnig undirskrifuð formleg mótmæli hagsmunaðila og undirskriftalisti áhugamanna um öruggar samgöngur í Mýrdal.

Fyrirliggjandi gögn hafa nú verið send Umhverfisstofnun og Vegagerðinni og vonast er eftir viðbrögðum þessara stofnana öðru hvoru megin við áramótin. 

Áréttað skal að málið er á umræðustigi - formleg tillaga hefur ekki litið dagsins ljós.  Tillaga að aðalskipulagi verður formlega auglýst þegar hún verður tilbúin að mati skipulags- og byggingarnefndar, sveitarstjórnar og Skipulagsstofnunar.  Íbúum og öðrum áhugasömum gefst þá kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna.

Áhugasamir geta skoðað hugmyndirnar sem kynntar voru á fundinum í Leikskálum hér að neðan.  Af gefnu tilefni er enn minnt á að um hugmyndir er að ræða sem geta átt eftir að taka breytingum áður en endanleg tillaga er gerð.

 

 

 

 

 

 

Upplýsingar

Skipulags- og byggingarnefnd


Páll Tómasson
Helga Ólafsdóttir
Steinþór Vigfússon
Karl Pálmason
Þráinn Sigurðsson

Formaður

Páll Tómasson

Skipulags- og byggingarfulltrúi
Sveinn Pálsson

Skipulagsfulltrúi vegna aðalskipulagstillögu

Gísli Gíslason
 

Tenglar

Skipulagsstofnun

Umhverfisstofnun

Lagasafn Alþingis

Reglugerðasafn

Félagsmálaráðun.