Fundargerð 142. fundar skipulags- og byggingarnefndar frá 21. júní 2007.
Á
fundinum var m.a. fjallað um veglínur, göngu- og reiðleiðir vegna
aðalskipulags. Fyrir lá bréf Vegagerðarinnar þar sem gerðar eru tillögur að
nýjum veglínum Hringvegar um Mýrdal, en Mýrdalshreppur hafði óskað eftir að
Vegagerðin skoðaði nánar tvær veglínur í samráði við Umhverfisstofnun og
Siglingastofnun, aðra sunnan byggðar í Vík og sunnarlega um Reynishverfi og hina
um núverandi veg gegnum Vík, um göng við Borgarhól og norðarlega um
Reynishverfi.
Vegagerðin gerir tvær tillögur að veglínum sem falla reyndar saman á vestari
hluta svæðisins. Skipulags- og byggingarnefnd telur að tillaga Vegagerðar um að
fara með veginn um Reynisdal sé óásættanleg og var sammála um að tekin yrði
afstaða milli veglína 5 og 6 á fyrirliggjandi uppdrætti. Þrír greiddu atkvæði
með línu 5 og tveir með línu 6.
Skipulags- og byggingarnefnd er þar með sammála um að leggja til að veglína 5
verði færð inn á aðalskipulagstillögu til umfjöllunar og afgreiðslu, þó með
þeirri breytingu að fylgt verði tillögu Vegagerðarinnar vestan Brandslækjar.
Sveitarstjórn samþykkir að tillaga skipulags- og byggingarnefndar um veglínu
verði tekin sérstaklega til afgreiðslu.
Tillagan er samþykkt með þremur atkvæðum (EE, KP, BJ) gegn tveimur (SP, ÞJ).
Sveinn og Þórhildur leggja fram bókun:
Undirrituð greiða atkvæði gegn tillögu skipulags- og byggingarnefndar vegna
eftirfarandi:
- Tillagan uppfyllir ekki markmið sem sett voru fram í greinargerð starfshóps um
vegamál í Mýrdal frá árinu 2005 um að nýr vegur fari yfir sem minnst af
ræktunarlandi en jarðir eru flestar litlar og ræktunarland því dýrmætt. Verði
tillagan að veruleika er dýrmætu ræktunarlandi fórnað.
- Ekki er tekið nægjanlegt tillit til athugasemda sem fram hafa komið vegna
umhverfissjónarmiða, veglínan liggur um eða við svæði sem eru á
náttúruminjaskrá.
- Við erum sammála tveimur nefndarmanna skipulags- og byggingarnefndar sem telja
veglínu 6, um jarðgöng við Borgarhól og um norðanvert Reynishverfi þann kost sem
best samrýmir umhverfis-, landnýtingar- og umferðaröryggissjónarmið. Við teljum
að unnt sé að ná fram verulegum úrbótum á öryggi vegfaranda og þeirra sem við
veginn búa án þess að fórna náttúruverðmætum eins og tillagan gerir ráð fyrir.
Þetta má gera t.d. með því að koma upp hringtorgum beggja vegna Víkur, lækka
hámarkshraða, bæta gangbrautir og merkingar og hugsanlega koma upp göngubrú yfir
veginn.
Sveinn Pálsson
Þórhildur Jónsdóttir
Björgvin leggur fram bókun:
Undirritaður greiðir atkvæði með tillögu skipulags- og byggingarnefndar, en
vildi sjá veglínuna sunnar í Reynishverfi, eins og tillaga 2 býður upp á. Með
því að fylgja nokkurn veginn norðanverðum ósbökkum Dyrhólaóss og svo áfram með
göngum í gegnum Geitafjall, er hægt að halda veginum nokkuð beinum, komið er í
veg fyrir frekara landbrot og sú leið hlífir betur ræktunarlandi bænda í
Reynishverfi. Þessi leið tel ég að þjóni best hagsmunum heildarinnar.
Björgvin Jóhannesson
B-listinn leggur fram bókun:
Fulltrúar B- listans telja að raunhæfasta veglínan sé tillaga 5 sem
Skipulags- og byggingarnefnd sammælist um og samþykkti á fundi sínum 21 júní
sl. Þessi tillaga 5 að veglínu samrýmist jafnframt mjög tillögu Vegagerðarinnar
(sbr bréf dags. 5. júní) en er færð suður fyrir megin byggðina í Reynishverfi.
Til framtíðar litið er afar óskynsamlegt að hringvegurinn liggi í gegnum
íbúðabyggðina í Vík og áfram í gegnum jarðgöng í Borgarhóli, slíkt hefði í för
með sér mikið raski í og við byggðina í Vík og eyðileggur verðmætt
byggingarland. Gagnamunni vestan við Reynisfjall sem lægi norðan Hnúksins við
Reyni lægi mjög nærri mannvirkjum og jafnframt yrði áfram viðvarandi mjög mikil
umferð um bæjarhlöð bæjanna Lækjarbakka og Reynis.
Með veglínu 5 verður minnst rask fyrir núverandi byggð og minnstar skemmdir á
landi.
Elín Einarsdóttir
Karl Pálmason.
Fundargerðin að öðru leyti samþykkt.