03.02.2010
Menntastefna Mýrdalshrepps 2010
Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 15. mars 2007 að fela
fræðslunefnd að vinna að heildstæðri menntastefnu fyrir sveitarfélagið en þá
voru þrjár skólastofnanir starfandi innan þess; leikskóli, grunnskóli og
tónlistarskóli. Þessar þrjár stofnanir voru svo 1. ágúst 2009 sameinaðar í einn
skóla, sem hlaut nafnið, Víkurskóli.
Menntastefna Mýrdalshrepps er fyrst og síðast hugsuð sem áætlun sveitarfélagsins
hvað markmið og leiðir í menntamálum varðar.
Á 158. fundi fræðslunefndar Mýrdalshrepps þann 16. mars 2009 samþykkti
fræðslunefnd að skipa 5 manna stýrihóp til að leiða vinnu við gerð menntastefnu
Mýrdælinga.
Þennan stýrihóp skipa 3 fulltrúar úr fræðslunefnd og 2 úr hópi foreldra sem tóku
þátt í íbúaþingi þann 17. janúar 2009. Stýrihópnum ber að leita til
skólastjórnenda, starfsfólks foreldra/forráðamanna, nemenda og annarra er láta
sig fræðslu og uppeldi barna og unglinga varða.
Í stýrihópinn voru skipuð Þorgerður Einarsdóttir, Inger Schiöth og Andrína G.
Erlingsdóttir úr fræðslunefnd, Harpa Jónsdóttir og Eiríkur Tryggvi Ástþórsson
voru svo skipuð úr hópi foreldra sem tóku þátt í íbúaþinginu.
Áætlað er að menntastefnan verði tilbúin 18. mars n.k.