F U N D A R G E R Ð

118. fundar skólanefndar Mýrdalshrepps, haldinn á skrifstofu Mýrdalshrepps, miðvikudaginn 15. september  2004 kl. 16:30.
Fundinn sátu undirritaðir aðalmenn skólanefndar.   Sveitarstjóri ritaði fundargerð á tölvu.  Formaður, Þorgerður Einarsdóttir setti fund og stjórnaði.            Áheyrnarfulltrúar mættu ekki.

Gerðir fundarins:

I.                   Grunnskólinn.

Á fundinn er mætt Kolbrún Hjörleifsdóttir skólastjóri.

1.       Stundaskrár.
Kolbrún leggur fram stundaskrár og gerir grein fyrir þeim.  Fram kemur að vegna endurskipulagningar skólastarfs hafa stundaskrár tekið breytingum fram til þessa dags og enn væru nokkur atriði í skoðun.
Lagt fram til kynningar.
Rætt var um aukna samkennslu, sérstaklega í eldri bekkjum.

2.       Bréf foreldra barna í skólaakstri dags. 31. ágúst og 6. september 2004.
Í fyrra bréfinu er m.a. farið fram á að börnin fái samfelldan skóladag.  Sveitarstjóri sendi svarbréf 2. september og í framhaldi af því óskuðu foreldrarnir eftir fundi með sveitarstjóra, formanni skólanefndar og skólastjórnendum og báðu um svar við nokkrum spurningum.
Sveitarstjóri, formaður skólanefndar og skólastjórnendur boðuðu til fundar með foreldrum barna í skólaakstri 13. september þar sem spurningum foreldra var svarað og málin rædd frá ýmsum hliðum.  Á fundinum koma m.a. fram ósk hluta foreldra um að aftur yrði tekinn upp tvöfaldur heimakstur þannig að yngri börnin væru keyrð heim strax að loknum skóla.  Einnig kom fram óánægja með að ekki hefði verið kynnt hvað börn ættu að hafa fyrir stafni meðan beðið væri eftir heimferð.
Eins og fram kemur í 1. lið fundargerðarinnar er enn unnið að stundaskrám sem væntanlega leiðir til aukinnar samfellu.  Á fundinum með foreldrunum voru lagðar fram upplýsingar um framboð tómstundastarfs sem í boði er meðan beðið er eftir skólaakstri.
Skólanefnd er sammála um að hinu nýja fyrirkomulagi verði gefinn eðlilegur reynslutími og að leitað verði viðhorfa foreldra með könnun fyrir lok nóvembermánaðar.
 

3.       Önnur mál.
Lagt fram minnisblað frá Sambandi ísl. Sveitarfélaga varðandi framkvæmd hugsanlegs verkfalls kennara í grunnskólum.    

Ragnheiður víkur af fundi.

II.          Tónskólinn.

Á fundinn er mætt Kristín Waage tónskólastjóri.

1.       Skráningar nemenda og stundatöflugerð.
Kristín upplýsir að 35 nemendur hafi skráð sig í einstaklingsnám og 19 börn eru í forskóla.  Nemendur eru fleiri en á fyrra ári en meiri hluti þeirra er í hálfu námi.   Stundatöflugerð er lokið.  Fréttabréfi verður dreift með pósti á morgun.

2.       Önnur mál.

a)         Kennsla verður í tónskólanum samkvæmt stundatöflu þó að komi til verkfalls grunnskólakennara.

b)         Kristín vekur athygli á að sveitarstjórn þurfi að marka sér stefnu varðandi greiðslur vegna framhaldsnáms barna hjá tónskólum í öðrum sveitarfélögum.

c)         Samþykkt að gjald fyrir eingöngu tónfræðinám í hópkennslu sé um fjórðungur af fullu gjaldi.

 


 

Fundargerðin lesin upp og samþykkt.

 

Fundi slitið kl: 18:45.

 

 

 

 

 

 

Sigrún Guðmundsdóttir

 

Þorgerður Einarsdóttir

 

Bergþóra Ástþórsdóttir

 

 

 

Formaður

 

 

Ragnheiður Högnadóttir

 

 

 

Andrína Erlingsdóttir