F U N D A R G E R Ð

117. fundar skólanefndar Mýrdalshrepps, haldinn á skrifstofu Mýrdalshrepps, þriðjudaginn 17.ágúst  2004 kl. 17:00.
Fundinn sátu undirritaðir aðalmenn skólanefndar.   Sveitarstjóri ritaði fundargerð á tölvu.  Formaður, Þorgerður Einarsdóttir setti fund og stjórnaði.    

Gerðir fundarins:

I.                   Grunnskólinn.

Á fundinn er mætt Kolbrún Hjörleifsdóttir skólastjóri.

1.       Bréf Mentor dags. 6. maí 2004.
Lagt fram til kynningar.

2.       6 mánaða staða.
Skv. útskrift úr bókhaldi er staða um mitt ár 52% af áætlun ársins.

3.       Skipulag skólastarfs.
Kolbrún kynnir skipulagsbreytingar sem unnið hefur verið að og námskeið varðandi samkennslu og einstaklingsmiðaða kennsluhætti.  Unnið er að aðlögun skólanámskrár að fyrirhugðum breytingum.    

II.                Leikskólinn

Á fundinn er mætt Aðalheiður Sigþórsdóttir leikskólastjóri.

1.       6 mánaða staða.
Skv. útskrift úr bókhaldi er staða um mitt ár 69% af áætlun ársins.

2.       Umsóknir um vistun - starfsmannamál.
Fyrir liggja 7 umsóknir um vistun.  Unnt er að verða við umsóknunum ef bætt verður við einum starfsmanni.  Áætlaður viðbótarkostnaður til áramóta er milli kr. 100.000,- og 200.000,-
Skólanefnd leggur til að ráðinn verði starfsmaður frá 1. september þannig að unnt sé að verða við umsóknunum.  Tekið verði tillit til þessa við endurskoðun fjárhagsáætlunar.

III.             Tónskólinn.

Á fundinn er mætt Kristín Waage tónskólastjóri.

1.       6 mánaða staða.
Skv. útskrift úr bókhaldi er staða um mitt ár 53% af áætlun ársins.

2.       Önnur mál.

a)         Skólanefnd samþykkir skóladagatal fyrir skólaárið 2004-2005 sem Kristín leggur fram.

b)         Kristín upplýsir að nemenda í tónskóla gefst kostur á að stunda nám sitt á grunnskólatíma þar sem nemandinn hefur lokið skyldunámi í einni grein.

 

Fundargerðin lesin upp og samþykkt.

 

Fundi slitið kl: 19:20.

 

 

 

 

 

 

Sigrún Guðmundsdóttir

 

Þorgerður Einarsdóttir

 

Bergþóra Ástþórsdóttir

 

 

 

formaður

 

 

Ragnheiður Högnadóttir

 

 

 

Andrína Erlingsdóttir