Á fundinn eru mætt Kolbrún Hjörleifsdóttir skólastjóri, Ólafur Þ. Gunnarsson fulltrúi foreldraráðs og Kristín Marti Kasparsdóttir fulltrúi kennara.
1.
Skipulag skólaaksturs 2004-2005.
Sveinn og Kolbrún kynna þrjá möguleika að skipulagi
skólaaksturs þar sem seta skólabarna í bíl er frá 35-60 mín. Skólanefnd mælir
með að valin verði möguleiki 3 þar sem um er að ræða jafnasta setu í bíl eða
30-35 mín. Möguleiki 2 væri næsti kostur og leið 1 útilokuð.
2.
Skipulags skólastarfs 2004-2005, samkennsla, samstarf skóla.
Kolbrún kynnir áætlun um endurmenntun og
skipulagsvinnu vegna aukinnar samkennslu og upplýsir að starfsfólk sé jákvætt
til breytinganna. Gert er ráð fyrir að rammi fyrir kennsluna verði tilbúinn í
júní.
Vegna endurskipulagningar skólaaksturs þar sem ætlað er að yngri og eldri börn
verði keyrð á sama tíma úr og í skóla, þarf samstarf við tónskóla, ungmennafélag
og félagsmiðstöð.
Samþykkt að sveitarstjóri boði til samráðsfundar fyrir páska.
3.
Starfsmannahald 2004-2005.
Kolbrún gerir grein fyrir því að Björgvin, Kjartan og
Eva Dögg hyggjast ekki starfa næsta skólaár.
Sveinn og Kolbrún auglýsa eftir íþróttakennara æskulýðs- og tómstundafulltrúa
hið fyrsta.
4.
Starfsmannahald íþróttamiðstöðvar.
Sveinn upplýsir að gert sé ráð fyrir u.þ.b. 2,5
stöðugildum við íþróttamiðstöð fyrir utan ræstingu.
5.
Grunnskólaþing.
Samband íslenskra sveitarfélaga boðar til
grunnskólaþings 26. mars. Þorgerður, Sveinn og Kolbrún fara á þingið, Sveinn
sér um skráningu.
6. Önnur mál.
a) Ársþing fámennra skóla verður haldið að Höfðabrekku 24. apríl.
b)
Kolbrún kynnti fyrstu útgáfu
starfsmannahandbókar.
Á fundinn eru mættar Aðalheiður Sigþórsdóttir leikskólastjóri og Halldóra Friðjónsdóttir fulltrúi foreldra.
1.
Bréf deildar 8 Félags leikskólakennara dags. 12. febrúar 2004.
Aðalheiður upplýsir að starfsdagur verði 24.09.2004
og að starfsfólk hyggist sækja haustþing leikskólakennara þann dag.
2. Önnur mál
a) Fjarnemendur fara til Akureyrar 14.-29. maí.
b) Smíðakofi hefur verið tekinn í notkun.
c) Verknámsnemi verður við leikskólann 15. apríl til 18. maí.
Á fundinn er mætt Kristín Waage tónskólastjóri.
1.
Skipulag skólastarfs 2004-2005, samstarf
skóla.
Kristín upplýsir að erfitt sé að setja saman stundatöflu tónskólans fyrr en
fyrir liggur stundatafla skóla, ungmennafélags og félagsmiðstöðvar. Þá sé
mikilvægt að samráð sé haft við tónskólann áður aðrir breyta stundatöflu sinni.
Vegna endurskipulagningar skólaaksturs þar sem ætlað er að yngri og eldri börn
verði keyrð á sama tíma úr og í skóla, þarf samstarf við tónskóla, ungmennafélag
og félagsmiðstöð.
Samþykkt að sveitarstjóri boði til samráðsfundar fyrir páska.
2. Önnur mál.
a) Vegna skipsstrands hefur starfsemi tónskólans raskast nokkuð en reynt verður að bæta nemendum upp tapaða tíma eftir föngum.
Fundargerðin
lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið kl: 18:30.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Þorgerður Einarsdóttir, form. |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sigrún Guðmundsdóttir |
|
|
|
Bergþóra Ástþórsdóttir |
|
|
|
|
|
|
|
Ragnheiður Högnadóttir |
|
|
|
Andrína Erlingsdóttir |