Á fundinn eru mætt Kolbrún Hjörleifsdóttir skólastjóri, Ólafur Þ. Gunnarsson fulltrúi foreldraráðs og Kristín Marti Kasparsdóttir fulltrúi kennara.
1.
Skólaakstur 2004-2005.
Fyrir liggur minnisblað sveitarstjóra þar sem lagt er
til að á næsta skólaári verði skólaakstur einfaldaður til muna þannig að aðeins
verði ein ferð á dag í og úr skóla. Haft verði ofan af fyrir yngri skólabörnum
sem hafa færri skólaskylda tíma en þau eldri með því að skipuleggja íþróttatíma,
tónlistarkennslu, félagsstarf, heimanám eða gæslu meðan beðið er eftir að þau
eldri ljúki sínum tímum. Mismunur á skólaskyldu yngstu og elstu barnanna er 7
tímar á viku.
Samningur um skólaakstur rennur út í vor og leggur sveitarstjóri til að
skólaakstur verði boðinn út hið fyrsta.
Lagt fram til kynningar.
2.
Sundlaug
Fyrir liggur til kynningar tillaga að stærð og
fyrirkomulagi sundlaugar við íþróttahúsið í Vík.
Skólanefnd lýsir yfir ánægju sinni með ákvörðun um byggingu sundlaugar.
3. Önnur mál
a)
Bréf Menntamálaráðuneytis dags. 22. janúar 2004.
Lagt fram til kynningar.
b)
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 10.
febrúar 2004.
Lagt fram til kynningar.
c)
Samkennsla.
Kolbrún upplýsir að unnið sé að skipulagningu vegna
aukinnar samkennslu.
Fundargerðin
lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið kl: 18:00.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Þorgerður Einarsdóttir, form |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sigrún Guðmundsdóttir |
|
|
|
Bergþóra Ástþórsdóttir |
|
|
|
|
|
|
|
Kristín Einarsdóttir |
|
Kristín Svafarsdóttir |
|
Andrína Erlingsdóttir |