F U N D A R G E R Ð

112. fundar skólanefndar Mýrdalshrepps, haldinn á skrifstofu Mýrdalshrepps, þriðjudaginn 20. janúar  2004 kl. 17:00.
Fundinn sátu undirritaðir aðalmenn skólanefndar.  Sveitarstjóri ritaði fundargerð á tölvu.
Formaður, Þorgerður Einarsdóttir setti fund og stjórnaði.       

Gerðir fundarins:

I.                   Grunnskólinn.

Á fundinn eru mætt Guðrún Pétursdóttir aðstoðarskólastjóri, Ólafur Þ. Gunnarsson fulltrúi foreldraráðs og Kristín Marti Kasparsdóttir fulltrúi kennara.

1.       Starfsemi á vorönn 2004.
Guðrún gerir grein fyrir starfseminni og kynnti tvö námskeið um agamál sem haldin verða í febrúar fyrir kennara og foreldra.   Undanúrslit stóru upplestrarkeppninnar fyrir eystri hluta Suðurlands verða haldin í Vík 11. eða 15. mars.  Nýr nemandi bættist í 3. bekk og minni háttar breytingar hafa orðið á stundaskrá og skipulagi skólaaksturs.

II.                Leikskólinn.

Á fundinn er mætt Aðalheiður Sigþórsdóttir leikskólastjóri.

1.       Starfsemi á vorönn 2004.
Aðalheiður gerir grein fyrir starfseminni.  Á starfsdegi í febrúar áformar starfsfólkið að heimsækja nokkra framsækna leikskóla á höfuðborgarsvæðinu.

2.       Önnur mál

a)         Fulltrúar skólanefndar heimsóttu leikskólann 20. nóvember 2003.

b)         Lagt fram til kynningar bréf frá Faghópi leikskólastjóra þar sem koma fram tilmæli frá haustfundi hópsins sem haldinn var 10. október 2003.

III.             Tónskólinn.

Á fundinn er mætt Kristín Waage tónskólastjóri. 

1.       Starfsemi á vorönn 2004.
Kristín gerir grein fyrir starfseminni.  Nú liggja fyrir fleiri umsóknir en hægt er að verða við og er einn á biðlista eftir fullu námi.

2.       Reglugerð Tónskólans
Fyrir liggja drög að reglugerð Tónskólans, yfirfarin af lögfræðingi Sambands íslenskra sveitarfélaga.  Nefndin samþykkir drögin með áorðnum breytingum.

3.       Önnur mál
Nokkur umræða var um hækkun tónskólagjalda sem sveitarstjórn hefur ákveðið að komi til framkvæmda fyrir næsta skólaár.
Kristín vakti athygli á því að engin ákvæði er að finna í reglum skólans um viðurlög við vanskilum tónskólagjalda.  Samþykkt að bæta inn ákvæði þar að lútandi í námskrá skólans.

 

 

Fundargerðin lesin upp og samþykkt.

 

Fundi slitið kl: 18:45.

 

 

 

 

 

 

 

Þorgerður Einarsdóttir, form

 

 

 

 

 

 

 

Sigrún Guðmundsdóttir

 

 

 

Bergþóra Ástþórsdóttir

 

 

 

 

 

 

Ragnheiður Högnadóttir

 

 

 

Andrína Erlingsdóttir