F U N D A R G E R Ð

110. fundar skólanefndar Mýrdalshrepps, haldinn á skrifstofu Mýrdalshrepps, þriðjudaginn 18. nóvember  2003 kl. 17:00.
Fundinn sátu undirritaðir aðalmenn skólanefndar ásamt Kristínu Einarsdóttir varamanni sem mætir í stað Ragnheiðar Högnadóttur sem boðaði forföll. Sveitarstjóri ritaði fundargerð á tölvu.
Formaður, Þorgerður Einarsdóttir setti fund og stjórnaði.       

Gerðir fundarins:

I.                   Grunnskólinn.

Á fundinn eru mætt Kolbrún Hjörleifsdóttir skólastjóri og Ólafur Þ. Gunnarsson fulltrúi foreldraráðs.

1.       Heimsókn skólanefndar.
Fyrir liggur minnisblað formanns frá heimsókn nefndarinnar í skólann 6. nóv. sl.

2.       Önnur mál.

a)         Afgreiðsla undanþágunefndar.
Fyrir liggur bréf nefndarinnar þar sem fram kemur að nefndin hafi samþykkt undanþágu til að ráða Björgvin Jóhannesson sem leiðbeinanda en synjað um undanþágu til að ráða  Sif Hauksdóttur og Áslaugu Einarsdóttur til að starfa sem leiðbeinendur.  Kolbrún upplýsir að hún muni skjóta ákvörðun nefndarinnar til menntamálaráðuneytisins.  

b)         Samræmd könnunarpróf í 4. og 7. bekk.
Kolbrún gerði grein fyrir niðurstöðum prófanna.

II.                Tónskólinn.

Á fundinn er mætt Kristín Waage tónskólastjóri. 

1.       Heimsókn skólanefndar.
Fyrir liggur minnisblað formanns frá heimsókn nefndarinnar í skólann 6. nóv. sl.

2.       Önnur mál

a)         Samstarfs- og gæslumál.
Kristín telur að samstarfi skólanna og gæslu í húsinu sé ekki háttað eins og þyrfti að vera. 
Nefndin leggur til að sveitarstjóri boði til fundar með skólastjórum grunn- og tónskóla, æskulýðs- og tómstundafulltrúa og húsverði til að leita lausna á gæslumálunum.

III.             Leikskólinn.

Á fundinn er mætt Aðalheiður Sigþórsdóttir leikskólastjóri..

1.       Heimsókn skólanefndar.
Ákveðið að skólanefnd heimsæki leikskólann kl. 12:00 fimmtudaginn 20. nóvember nk.

2.       Önnur mál

a)         Aðalheiður telur að pláss sé fyrir eitt barn í eldri deild en sú yngri er fullskipuð. 

 

Fundargerðin lesin upp og samþykkt.

 

Fundi slitið kl: 18:14.

 

 

 

 

 

 

 

Þorgerður Einarsdóttir, form

 

 

 

 

 

 

 

Sigrún Guðmundsdóttir

 

 

 

Bergþóra Ástþórsdóttir

 

 

 

 

 

 

Kristín Einarsdóttir

 

 

 

Andrína Erlingsdóttir