F U N D A R G E R Ð
107.
fundar skólanefndar Mýrdalshrepps, haldinn á skrifstofu Mýrdalshrepps,
fimmtudaginn 21. ágúst 2003 kl. 20:30.
Fundinn
sátu undirritaðir aðalmenn skólanefndar.
Fundargerðin er rituð á tölvu í samræmi við heimild í 23. gr.
sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
Formaður, Þorgerður Einarsdóttir setti fund og stjórnaði.
Gerðir
fundarins:
I.
Grunnskólinn.
Á fundinn eru mætt Kolbrún Hjörleifsdóttir
skólastjóri, Victoria Jonsson fulltrúi kennara og Ólafur Þorsteinn
Gunnarsson fulltrúi foreldraráðs.
1.
Skólaakstur.
Fyrir liggur minnisblað sveitarstjóra dags. 19.
ágúst 2003 þar sem fram kemur að aðeins eitt tilboð barst í skólaakstur og
eitt frávikstilboð, bæði frá Hópferðabílum Suðurlands. Báðum tilboðum hefur
verið hafnað en samið hefur verið við Hópferðabíla Suðurlands um skólaakstur
fyrir næsta skólaár. Skipulag akstursins verður það sama og á fyrra ári með
þeim breytingum að skólabíll keyrir að Hvolsbæjum og Ási þar sem foreldrar
sáu um akstur til móts við skólabíl. Sérstakur bíll verður úr
Reynishverfi. Áfram er gert ráð fyrir að börn gangi að leið skólabíls þar
sem vegalengdir eru minni en 500 m. Ekki er víst að hægt sé að hafa
sérstakan gæslumann í stærri bílnum og ekki verður gæsla í
Reynishverfisbílnum.
Skólanefnd samþykkir ofangreint skipulags skólaaksturs.
2.
Starfsmannamál.
Kolbrún gerir grein fyrir að búið sé að manna
allar stöður. Sif Hauksdóttir er ráðin sem leiðbeinandi. Björgvin
Jóhannesson í hálft starf og Áslaug Einarsdóttir í stundakennslu í
handamennt. Sigurður Hjálmarsson hefur verið ráðinn sem húsvörður og Fjóla
Gísladóttir, Sigríður K. Einarsdóttir og Soffía Magnúsdóttir sem
skólaliðar. Fjóla og Sigríður Kristín sjá um ræstingar og umsjón í
mötuneyti.
3.
Önnur mál.
Kolbrún gerir grein fyrir að búið sé að tengja
saman nýja og gamla húsið og mála og lagfæra eitt og annað innan dyra.
II.
Tónskólinn.
Á fundinn er mætt Kristín Waage
tónskólastjóri.
1.
Skólanámsskrá Tónskóla Mýrdælinga.
Fyrir fundinum liggja drög að skólanámsskrá.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
2.
Önnur mál.
a)
Forskólakennsla þ.e. kennsla 1.- 3.ja
bekkar, fer fram í hópkennslu innan grunnskólans en börnum í þessum bekkjum
sem hafa áður verið í tónlistarnámi verður áfram boðið upp á
einstaklingskennslu.
b)
Innritun fer fram 27. og 28. ágúst milli
kl. 16:00 og 18:00. Dreifibréf fer út á morgun.
III.
Leikskólinn.
Á fundinn er mætt Aðalheiður Sigþórsdóttir
leikskólastjóri.
1.
Bréf Petru K. Kristinsdóttur ódagsett (móttekið 14. júlí).
Þar óskar Petra eftir undanþágu frá
vistunarreglum leikskólans þannig að börn hennar fái vistun miðvikudaga,
fimmtudaga og föstudaga.
Erindinu vísað til leikskólastjóra í samræmi við samþykktar vistunarreglur.
2.
Starfsmannamál.
Þrír starfsmenn leikskólans hefja
leikskólakennaranám í byrjun september í fjarkennslu. Kennslan fer fram á
þriðjudögum í húsnæði grunnskólans. Starfsmennirnir verða í hálfu starfi á
leikskólanum með náminu og eru ekki á launum meðan á námi stendur.
Aðalheiður lagði fram barngildisútreikninga miðað við núverandi vistun en
upplýsti að nokkuð væri um breytingar á vistun.
3.
Önnur mál.
a)
Leikskólalóð hefur verið endurnýjuð en
framkvæmdum er ekki að fullu lokið norðan hússins.
b)
Bréf Félags leikskólakennara dags. 30.
júní 2003 þar sem vakin er athygli á þeim kröfum sem gerðar eru til
menntunar starfsmanna leikskóla.
Til kynningar.
c)
Drög að skólanámsskrá leikskólans eru
tilbúin og verða send nefndarmönnum á næstu dögum.
Fundargerðin
lesin upp og samþykkt.
Fundi
slitið kl. 22:25
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Þorgerður Einarsdóttir, form |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sigrún Guðmundsdóttir |
|
|
|
Bergþóra Ástþórsdóttir
|
|
|
|
|
|
|
|
Ragnheiður Högnadóttir |
|
|
|
Andrína Erlingsdóttir |
|