F U N D A R G E R Ð
106.
fundar skólanefndar Mýrdalshrepps, haldinn á skrifstofu Mýrdalshrepps,
þriðjudaginn 15. júlí 2003 kl. 17:00.
Fundinn
sátu undirritaðir aðalmenn skólanefndar. Andrína Erlingsdóttir tekur sæti
Gísla Sigurðssonar, sem óskað hefur eftir leyfi um ótiltekinn tíma.
Fundargerðin er rituð á tölvu í samræmi við heimild í 23. gr.
sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
Formaður, Þorgerður Einarsdóttir setti fund og stjórnaði.
Gerðir
fundarins:
I.
Grunnskólinn.
Á fundinn eru mætt Kolbrún Hjörleifsdóttir
skólastjóri og Victoria Jonsson fulltrúi kennara. Ólafur Þorsteinn
Gunnarsson fulltrúi foreldraráðs boðaði forföll.
1.
Bréf sveitarstjóra dags. 13. júní 2003 varðandi mötuneytismál.
Þar er vísað til umsagnar nefndarinnar, tillögu
um að næsta skólaár verði rekið sameiginlegt eldhús í Hjallatúni fyrir
Hjallatún, leikskóla og grunnskóla. Eldhúsið verði rekin sem sérstök deild
innan Hjallatúns og starfsmannahald í eldhúsi Hjallatúns og mötuneyti
grunnskólans endurskoðað.
Skólanefnd fagnar tillögu sveitarstjórnar um sameiginlegt eldhús fyrir
stofnanirnar og leggur áherslu á að þjónusta og mötuneytiskostnaður
skólabarna verði með sviðuðum hætti og áður.
2.
Skólaakstur.
Hópferðabílar Suðurlands hafa sagt upp samningi
um skólaakstur sem undirritaður var 15. nóv. 2002 og samningur Andrésar
Pálmasonar rennur út í haust.
Fyrir liggur tillaga um útboð á skólaakstri ásamt verklýsingu, þar sem gert
er ráð fyrir þremur akstursleiðum vestan Víkur.
Skólanefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi drög að öðru leyti en
því að ekki er gert grein fyrir öðrum akstri s.s. vettvangsferðum í
verklýsingunni.
3.
Starfsmannamál.
Kolbrún gerir grein fyrir að Kristín Maarti og
Kjartan Kárason hafi verið ráðin til starfa. Enn vantar einn kennara en
verið er að vinna úr niðurstöðum síðustu auglýsingar. Auglýst verður eftir
öðru starfsfólki í Vitanum á morgun.
4.
Bréf sveitarstjóra dags. 13. júní 2003 varðandi styrktarsjóð EBÍ.
Þar kemur fram að Mýrdalshreppur, sem
aðildarsveitarfélag að EBÍ, getur sent inn umsókn um styrk í sjóðinn.
Skólanefnd leggur til að sótt verði um styrk til verkefnis um þróun
samskipta sem Guðrún Pétursdóttir vinnur að.
5.
Úrskurður Félagsmálaráðuneytis um stjórnsýslukæru vegna skólaaksturs
2002-2003.
Ráðuneytið kvað upp úrskurð um stjórnsýslukæruna
þann 11. júní sl. Í úrskurðinum segir m.a.:
”Með erindi, dags. 25. október 2002, barst ráðuneytinu stjórnsýslukæra
frá Guðrúnu S. Ingvarsdóttur, Ómari H. Halldórssyni, Sævari Halldórssyni,
Höllu G. Emilsdóttur, Einari G. Þorsteinssyni, Petru K. Kristinsdóttur,
Hrönn Lárusdóttur, Bergi Elíassyni, Jóhanni V. Hróbjartssyni, Margréti
Harðardóttur, Sesselju Jónsdóttur og Finnboga Gunnarssyni varðandi
skólaakstur í Mýrdalshreppi. Kærð er ákvörðun sveitarfélagsins, dags. 14.
október 2002, um að öllum börnum sem eiga búsetu innan við 500 metra frá
þjóðvegi beri að aka í veg fyrir skólabíl og hætt verði að sækja börnin heim
að bæjum í myrkri og vondum veðrum.” Einnig að “tekin hafi verið
ákvörðun um að koma til móts við foreldra í sveitarfélaginu með þeim hætti
að börn verði keyrð heim að bæjum á heimleið, meti skólabílstjóri það
ótryggt að láta skólabörn út á stoppistöð.”
Í niðurstöðu ráðuneytisins segir m.a.: “Að öllu þessu virtu telur
ráðuneytið að í ljósi skorts á reglum um tilhögun skólaaksturs, verði ekki
komist að annarri niðurstöðu en að ákvörðun kærða um skipulag skólaaksturs,
dags. 14. október 2002, með síðari breytingum, sé lögmæt og byggist á
málefnalegum sjónarmiðum.”
Úrskurðarorð ráðuneytisins eru eftirfarandi: “Ákvörðun sveitarstjórnar
Mýrdalshrepps um skipulag skólaaksturs í sveitarfélaginu, dags. 14. október
2002, skal standa óhögguð.”
Í texta ráðuneytisins hér að ofan er ranglega talað um að “aka” skuli
í veg fyrir skólabíl en eins og fram kemur í öllum gögnum málsins er gert
ráð fyrir að börn sem búa innan við 500 metra frá aðalleið skólabíls
“gangi” í veg fyrir leið skólabíls. Foreldrum er hins vegar frjálst að
aka börnum sínum ef þau kjósa svo.
II.
Leikskólinn.
Á fundinn er mætt Aðalheiður Sigþórsdóttir
leikskólastjóri.
1.
Bréf sveitarstjóra dags. 13. júní 2003 varðandi vistunarreglur
Leikskólans.
Þar kemur fram að sveitarstjórn hefur farið yfir
drög að vistunarreglum og vísar þeim með áorðnum breytingum til umsagnar
skólanefndar.
Skólanefnd leggur til eftirfarandi breytingar:
- í grein 3 verði kveðið á um að hugsanlegar undanþágur verði tímabundnar.
– í grein 6 verði kveðið á um að að foreldrum sé skylt að tilkynna um
byrjaða sambúð eða sambúðarslit.
– í grein 7 verði kveðið á um að skipulagsdagar leikskólans séu sömu daga og
skipulagsdagar grunnskólans.
Skólanefnd lýsir furðu á að sveitarstjórn skuli fara gegn óskum fagaðila sem
stjórna skólastigi um skipulag starfsins.
Fundargerðin
lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið kl. 19:15
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Þorgerður Einarsdóttir, form |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sigrún Guðmundsdóttir |
|
|
|
Bergþóra Ástþórsdóttir
|
|
|
|
|
|
|
|
Ragnheiður Högnadóttir |
|
|
|
Andrína Erlingsdóttir |
|