F U N D A R G E
R Ð
105. fundar
skólanefndar Mýrdalshrepps, haldinn á skrifstofu Mýrdalshrepps, þriðjudaginn
27. maí 2003 kl. 21:00.
Fundinn sátu
undirritaðir aðalmenn skólanefndar.
Fundargerðin er
rituð á tölvu í samræmi við heimild í 23. gr. sveitarstjórnarlaga nr.
45/1998.
Formaður,
Þorgerður Einarsdóttir setti fund og stjórnaði.
Gerðir fundarins:
I.
Grunnskólinn.
Á fundinn eru mætt Kolbrún Hjörleifsdóttir skólastjóri og
Ólafur Þorsteinn Gunnarsson fulltrúi foreldraráðs. Victoria Jonsson fulltrúi
kennara boðaði forföll.
1.
Skóladagatal.
Engar athugasemdir voru gerðar við skóladagatalið og það samþykkt.
2.
Starfsmannamál.
Enn eru tæpar þrjár stöður lausar en góðar líkur eru á að takist að ráða í
eina stöðu á næstu dögum. Einnig er von á íþróttakennara í heimsókn.
3.
Önnur mál
a)
Þorgerður tilkynnti að henni barst í hendur umsókn um
stöðu húsvarðar í íþróttahúsi og grunnskóla. Þar sem það er ekki verksvið
Skólanefndar að ráða í þá stöðu er málinu vísað frá skólanefnd til
sveitarstjóra og skólastjóra.
II.
Tónskólinn.
Á fundinn er mættur Reynir Þór Finnbogason.
1.
Skýrsla tónskólastjóra.
Fjallað var um skýrslu tónskólastjóra. Reynir svaraði þeim
fyrirspurnum sem komu fram í sambandi við skýrsluna. Skólanefnd þakkar
Kristínu fyrir skýrsluna.
2.
Önnur mál.
a)
Reynir upplýsti að Tónskólinn væri að gera skóladagatal
fyrir næsta skólaár. Skóladagatalið verður sent skólanefnd fyrir næsta
fund.
b)
Reynir nefndi að nauðsynlegt er að finna æfingahúsnæði
fyrir bílskúrsbönd þar sem nær ómögulegt er að berja trommur í
kennslustofu ef verið er að nota hina kennslustofuna til annarar kennslu.
Einnig nefndi Reynir að nauðsynlegt sé að koma hljóðfærageymslu skólans
strax í viðunandi ástand þar sem hljóðfærin liggja undir skemmdum.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið kl. 22,00
|
|
|
|
|
|
|
|
Þorgerður Einarsdóttir, form |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sigrún Guðmundsdóttir |
|
|
|
Bergþóra Ástþórsdóttir
|
|
|
|
|
|
|
|
Ragnheiður Högnadóttir |
|
|
|
Gísli Sigurðsson |
|