F U N D A R G E R Ð

 

104. fundar skólanefndar Mýrdalshrepps, haldinn á skrifstofu Mýrdalshrepps, þriðjudaginn 20. maí  2003 kl. 17:00.

Fundinn sátu undirritaðir aðalmenn skólanefndar ásamt sveitarstjóra.  Andrína Erlingsdóttir mætti í stað Gísla Sigurðssonar. 

Sveitarstjóri  ritaði fundargerðina á tölvu í samræmi við heimild í 23. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

Formaður, Þorgerður Einarsdóttir setti fund og stjórnaði.     

Gerðir fundarins:

 

I.                   Leikskólinn.

Á fundinn er mætt Aðalheiður Sigþórsdóttir leikskólastjóri.

1.       Skipulag leikskólalóðar.
Lagt fram til kynningar.

2.       Önnur mál

a)         Aðalheiður gerði grein fyrir að búið væri að leysa sumarleyfismál leikskólans án þess að ráða viðbótarstarfsfólk.  Einnig gerði hún grein fyrir að 3 starfsmenn leikskólans hygðu á leikskólakennaranám næsta vetur.

II.                Grunnskólinn.

Á fundinn eru mætt Kolbrún Hjörleifsdóttir skólastjóri, Victoria Jonsson fulltrúi kennara og  Ólafur Þorsteinn Gunnarsson fulltrúi foreldraráðs.  Guðrún Pétursdóttir aðstoðarskólastjóri mætti til að kynna lið 2.

1.       Skóladagatal.
Kolbrún kynnti skóladagatal fyrir skólaárið 2003-2004.
Afgreiðslu frestað. 

2.       Þróunarverkefni.
Guðrún gerði grein fyrir verkefni sem hún hefur unnið í námi við framhaldsdeild Kennaraháskóla Íslands og fjallar um þróun samskipta heimilis og skóla.
Skólanefnd þakkar Guðrúnu framlagða skýrslu og væntir þess að áætlanir sem þar eru kynntar nýtist vel í starfi skólans.  Fundarmenn lýstu ánægju sinni með verkefnið. 

3.       Starfsmannamál.
Tæpar 2 stöður eru lausar enn, búið er að auglýsa aftur. 

4.       Samstarf skólanna.
Gert er ráð fyrir að a.m.k. 1-3 bekk verði boðið upp á tónskólanám innan stundaskrár grunnskólans.  Þá er verið að skoða möguleika á valgreinum í tengslum við tónskólann.

5.       Önnur mál.

a)         Kolbrún gerir grein fyrir að hún hyggist stunda nám við framhaldsdeild Kennaraháskólans meðfram vinnu næsta vetur.

b)         Sveinn upplýsti að hugsanlegt væri að boðið verði upp á nám í leikskólafræðum frá Háskólanum á Akureyri í Vík næsta vetur.  Skoða þarf aðstöðu fyrir þetta og önnur not fjarfundarbúnaðar í skólanum.


Fundargerðin lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið kl. 19:00

 

 

 

 

 

 

 

Þorgerður Einarsdóttir, form

 

 

 

 

 

 

 

 

Sigrún Guðmundsdóttir

 

 

 

Bergþóra Ástþórsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

Ragnheiður Högnadóttir

 

 

 

Andrína Erlingsdóttir