F U N D A R G E R Ð103. fundar skólanefndar Mýrdalshrepps, haldinn í grunnskólanum í Vík, þriðjudaginn 18. mars 2003 kl. 17:00.Fundinn sátu undirritaðir aðalmenn skólanefndar ásamt sveitarstjóra.Sveitarstjóri ritaði fundargerðina á tölvu í samræmi við heimild í 23. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.Formaður, Þorgerður Einarsdóttir setti fund og stjórnaði.Gerðir fundarins:I. Leikskólinn.Á fundinn er mætt Aðalheiður Sigþórsdóttir leikskólastjóri. 1.
Vistunartími – sbr. lið 5a) á fyrra fundi. 2. Önnur mál. a) Skólanámskrá og viðbúnaðaráætlanir eru í vinnslu. b) Lokað verður vegna sumarleyfa 30. júní – 25. júlí. II. Tónskólinn.Á fundinn er mætt Kristín Waage skólastjóri. 1.
Samstarf skólanna. 2. Önnur mál. a) Nýbyggingin verður vígð á formlegan hátt laugardaginn 22. mars kl. 13:00.
b)
Nemendatónleikar verða þriðjudaginn 25. mars kl. 20:30
fyrir almenna nemendur og fimmtudaginn 27. mars kl. 20:30 fyrir fullorðna
nemendur. III. Grunnskólinn.Á fundinn eru mætt Kolbrún Hjörleifsdóttir skólastjóri, Victoria Jonsson fulltrúi kennara og Ólafur Þorsteinn Gunnarsson fulltrúi foreldraráðs. 1.
Samstarf skólanna. 2. Starfsmannamál.
a)
Íþróttakennari – Æskulýðs- og tómstundafulltrúi.
b)
Almennir kennarar. 3.
Handbók skólamála – endurskoðun. 4. Önnur mál. a) Stefnt er að því að leggja skóladagatal og almennur hluti skólanámskrár vegna skólaársins 2003-2004 fyrir maífund skólanefndar. b) Nýbyggingin verður vígð á formlegan hátt laugardaginn 22. mars kl. 13:00. c) Skólanefnd óskar eftir því að fundarboð berist nokkru fyrr en verið hefur.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt. Fundi slitið kl. 19:08
|