F U N D A R G E R Ð

102. fundar skólanefndar Mýrdalshrepps, haldinn á skrifstofu hreppsins Austurvegi 17 í Vík, þriðjudaginn 25. febrúar  2003 kl. 17:00.

Fundinn sátu undirritaðir aðalmenn skólanefndar ásamt sveitarstjóra.  Gísli Sigurðsson mætti ekki.

Sveitarstjóri  ritaði fundargerðina á tölvu í samræmi við heimild í 23. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

Formaður, Þorgerður Einarsdóttir setti fund og stjórnaði.    

Gerðir fundarins:

I.                   Grunnskólinn.
 Á fundinn eru mættar  Kolbrún Hjörleifsdóttir skólastjóri, Victoria Jonsson fulltrúi kennara og Guðrún Ólafsdóttir fulltrúi foreldraráðs.

1.       Fjárhagsáætlun 2003.
Kolbrún kynnti fyrirliggjandi áætlun og lagði fram greinargerð.
Nefndin samþykkir fyrirliggjandi áætlun fyrir sitt leyti með 3 atkvæðum.   Ragnheiður situr hjá þar sem henni finnst vissir liðir óljósir.

2.       Rýmingaráætlun vegna Kötlu.
Kolbrún gerði grein fyrir að áætlun hafi verið endurnýjuð mtt. breytinga á húsnæðinu og stefnt er að rýmingaræfinu innan skamms.  Að öllu jöfnu verði haldin rýmingaræfing 12. október ár hvert.

3.       Brunavarnaáætlun.
Kolbrún gerði grein fyrir að hún hafi fundað með slökkviliðsstjóra og rætt málið.  Nefndin óskar eftir að brunavarnaáætlun verði unnin fyrir skólann hið fyrsta.

4.       Önnur mál.

a)         Guðrún Ólafsdóttir undirritar trúnaðaryfirlýsingu.

b)         Formaður þakkar skólastjóra fyrir vandað fréttabréf skólans.

c)         Kolbrún vekur athygli á því að húsvörður er kominn til starfa við skólamannvirkin og fagnar því.  Einnig fagnar hún nýju íþrótta- og skólahúsi og telur þetta afar stóran áfanga í starfsemi skólans.  Nefndin tekur undir þetta.

II.                Leikskólinn.
Á fundinn er mætt Aðalheiður Sigþórsdóttir leikskólastjóri.

1.       Gjaldskrá leikskólans.
Lögð er fram tillaga að nýrri gjaldskrá skólans þar sem tekið er mið af gjaldskrám annarra leikskóla í V-Skaft. og Rangárþingi.  Skv. tillögunni er gert ráð fyrir að grunngjald hækki um 5,4%.  Nefndin samþykkir að gjaldskráin hækki frá og með 1. apríl nk. og síðan taki hún breytingu skv. vísitölu neysluverðs um hver áramót.

2.       Fjárhagsáætlun 2003.
Aðalheiður kynnti fyrirliggjandi áætlun.  Einnig kynnti hún niðurstöður könnunar meðal foreldra leikskólabarna þar sem fram kemur að 5 foreldrar hafa áhuga fyrir sumaropnun með gefnum forsendum.  Nefndin telur áhugann ekki nægan til að leggja til að skólanum verði haldið opnum allt árið.
Nefndin leggur til að átak verði gert í uppbyggingu lóðar og leiktækja og að amk. 400.000,- kr. verði varið til kaupa á leiktækjum og samþykkir fyrirliggjandi tillögu með áorðnum breytingum.

3.       Rýmingaráætlun vegna Kötlu.
Aðalheiður upplýsti að til væri viðbragðsáætlun fyrir leikskólann vegna Kötlugoss.  Samþykkt að Aðalheiður endurskoði áætlunina og kynni á næsta fundi.

4.       Brunavarnaáætlun.
Brunavarnaáætlun er ekki til skrifleg.  Nefndin samþykkir að Aðalheiður geri brunavarnaáætlun í samráði við slökkviliðsstjóra og kynni nefndinni.

5.       Önnur mál.

a)         Skólanefnd samþykkir að frá og með haustönn verði einungis boðið upp á vistun 5 daga vikunnar.  Þetta er gert til þess að börnin missi ekki af einstökum þáttum skólastarfsins og til að einfalda starfsskipulag.

b)         Skólastjóra er falið að kynna foreldrum tímasetningar sumarlokunar.

c)         Formaður þakkar leikskólanum vandað fréttabréf.

III.             Tónskólinn.
Á fundinn er mætt Kristín Waage tónskólastjóri.

1.       Drög að reglugerð tónskólans.
Samþykkt að fella niður fyrstu tvær málsgreinar 10. greinar.  Einnig að fjárhagsáætlun verði unnin í lok árs og verði lögð fyrir sveitarstjórn fyrir 15. desember.  Þá þarf að endurskoða greinanúmer.  Fram komu vangaveltur um hvort heimilt sé skv. fyrirliggjandi drögum að takmarka aðgang að skólanum ef fjárhagsáætlun sveitarfélagsins gerir ráð fyrir lægri upphæð en sá nemendafjöldi sem um sækir krefst.  Afgreiðslu frestað.

2.       Fjárhagsáætlun 2003.
Gert er ráð fyrir að skólinn rúmi uþb. 40 nemendur í fullu námi og að 1-4 bekk sé kennt í samkennslu innan skólatíma grunnskólans þó þannig að þeir nemendur sem þegar eru í einstaklingskennslu haldi því áfram.
Nefndin samþykkir að endurskoða skólagjöld fyrir haustönn 2003 og samþykkir fyrirliggjandi fjárhagsáætlun fyrir sitt leyti.

3.       Rýmingaráætlun vegna Kötlu.
Rýmingaráætlun er ekki til fyrir skólann.  Samþykkt að skólastjóri geri áætlun í samráði við sveitarstjóra og skólastjóra grunnskólans.

4.       Brunavarnaáætlun.
Brunavarnaáætlun er ekki til skrifleg.  Samþykkt að skólastjóri geri áætlun í samráði við slökkviliðsstjóra og skólastjóra grunnskólans.
 

5.       Önnur mál.

a)         Formaður þakkar tónskólanum vandað fréttabréf.

Fundargerðin lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið kl. 20:15

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þorgerður Einarsdóttir, form

 

 

 

 

 

 

 

 

Sigrún Guðmundsdóttir

 

 

 

Bergþóra Ástþórsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

Ragnheiður Högnadóttir

 

 

 

Gísli Sigurðsson