Fundargerð 

99. fundar skólanefndar Mýrdalshrepps, haldinn á skrifstofu hreppsins Mýrarbraut 13 í Vík, þriðjudaginn 19. nóvember  2002 kl. 20:00.

 

Fundinn sátu undirritaðir aðalmenn skólanefndar ásamt sveitarstjóra.  Gísli Sigurðsson mætti ekki. 

 

Sveitarstjóri  ritaði fundargerðina á tölvu í samræmi við heimild í 23. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

 

Gerðir fundarins:

           

1.      Grunnskólinn
Á fundinn eru mættar  Kolbrún Hjörleifsdóttir skólastjóri og Victoria Jonsson fulltrúi kennara.

a)      Skólaakstur.
Sveitarstjórn barst undirskriftalisti dags. 24. okt. 2002 þar sem 12 aðilar krefjast þess að skólaakstri verði breytt þannig að sótt verði heim að bæ.  Gerð hefur verið viðhorfskönnun meðal foreldra barna í skólaakstri og bárust svör frá 30 aðilum af 33.  16 aðilar vilja ekki breyta núverandi fyrirkomulagi, 11 vilja breytingar þannig að sótt verði heim á bæ og 3 eru hlutlausir.  Ákveðið að skólastjóri, sveitarstjóri, formaður og Bergþóra fari yfir málið í samráði við skólabílstjóra og skili áliti til sveitarstjórnar.

b)      Handbók skóla.
Á 89. fundi skólanefndar þann 14. ágúst 2001 var lagt til að handbók skólamála yrði samþykkt með fyrirvara um að starfslýsingar verði nánar yfirfarnar og aðlagaðar núverandi skipulagi.  Sveitarstjórn staðfesti fundargerð skólanefndar þann 16. ágúst 2001.
Kolbrún upplýsir að þessi aðlögun hafi ekki farið fram.  Samþykkt að skólastjóri og sveitarstjóri aðlagi starfslýsingarnar og leggi fyrir skólanefnd.

c)      Heimsókn skólanefndar.
Skólanefnd heimsótti skólann þann 22. október 2002.

d)      Endurskoðun fjárhagsáætlunar.
Kolbrún leggur fram endurskoðaða fjárhagsáætlun.  Skv. henni lítur út fyrir að skólinn verði rekinn innan ramma fyrri áætlunar þó að nokkrar tilfærslur verði milli einstakra liða.

 

2.       Tónskóli Mýrdælinga
Á fundinn er mætt Kristín Waage skólastjóri tónskólans.

a)      Endurskoðun  fjárhagsáætlunar.
Ljóst er að eldri fjárhagsáætlun stenst ekki og vantar um 1,7 Mkr. vegna launa m.a. þar sem 4 kennarar voru á launum í ágústmánuði.

b)      Endurskoðun reglugerðar tónskólans.
Núgildandi reglugerð er frá 1999 og þarfnast endurskoðunar.  Ákveðið að formaður, skólastjóri, og Ragnheiður endurskoði reglugerðina og leggi fyrir skólanefnd.

c)      Heimsókn skólanefndar.
Skólanefnd heimsótti skólann þann 22. október 2002.

d)      Skólanámsskrá.
Skólanámskrá er í undirbúningi.

e)      Starfsemi tónskólans til framtíðar.
Nú eru kenndir 108 tímar á viku eða 54 klst.  Þar af eru 5,5 klst. í fullorðinskennslu.  Kennsluskylda skólastjóra er 14 klst og kennara 19,5.  Því eru 20,5 klst. kenndar í yfirvinnu eða heil staða kennara.  Ýmsir möguleikar ræddir og samþykkt að málið verði skoðað samhliða endurskoðun reglugerðar skólans.

 

3.      Leikskólinn
Á fundinn er mætt Aðalheiður Sigþórsdóttir leikskólastjóri.

a)      Mötuneyti.
Ákveðið að boðið verði upp á heitan mat í hádeginu frá og með 2. desember.  Matur verður eldaður í Hjallatúni og kostar hver máltið kr. 200,-  Foreldrum hefur verið kynnt málið með bréfi og engar athugasemdir hafa komið fram.

b)      Heimsókn skólanefndar.
Skólanefnd heimsótti skólann þann 22. október 2002.

 

4.      Fundartími.
Nýr fundartími skólanefndar ákveðinn kl. 17:00 þriðjudaginn á undan reglulegum fundi sveitarstjórnar.  Grunnskólinn kl. 17:00, leikskólinn kl. 18:00 og tónskólinn kl. 18:30.

 

Fundargerðin lesin og samþykkt.

Fundi slitið kl.  22:30

 

 

_______________________
Þorgerður Einarsdóttir, form.

 

____________________________                ________________________________

Sigrún Guðmundsdóttir                                         Bergþóra Ástþórsdóttir

 

 

____________________________                ________________________________
Ragnheiður Högnadóttir