Fundargerð

96. fundar skólanefndar Mýrdalshrepps, haldinn á skrifstofu hreppsins Mýrarbraut 13 í Vík, mánudaginn 19. ágúst  2002 kl. 20:00.

Fundinn sátu undirritaðir aðalmenn skólanefndar ásamt sveitarstjóra.   Gísli Sigurðsson mætti ekki.

Sveitarstjóri  ritaði fundargerðina á tölvu í samræmi við heimild í 23. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.

 

Gerðir fundarins:

           

1.      Grunnskólinn
Á fundinn er mætt Victoria Jonsson áheyrnarfulltrúi kennara. 

a)      Húsnæðismál
Kennarar eru byrjaðir að flytja inn í nýja húsið.  Gert er ráð fyrir að lagnir verði  tengdar á fimmtudag og húsið þar með nothæft.  Nýr gólfdúkur verður settur á mötuneyti á miðvikudag eða fimmtudag.

b)      Starfsmannamál
Frestað þar sem skólastjóri mætti ekki á fundinn.

c)      Skólaakstur
Sveitarstjóri kynnti fyrirliggjandi hugmyndir að skipulagi skólaaksturs og drög að verktakasamningi við skólabílstjóra.  Nefndin gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi samningsdrög og líst vel á skipulag aksturs.

d)      Skipulag skólalóðar
Lagður fram til kynningar ófullgerður uppdráttur af skólalóð.

 

2.      Leikskólinn
Á fundinn er mætt Aðalheiður Sigþórsdóttir leikskólastjóri.

a)      Kynning á starfsemi
Leikskólastjóri leggur fram starfsáætlun fyrir veturinn og gerir grein fyrir henni.  Nefndin þakkar Aðalheiði fyrir vandaða starfsáætlun.  Á leikskólanum eru nú 25 börn.  Í vetur verða Ásta, Halla og Guðlaug í 100% starfi, Inga í 50% starfi og Aðalheiður í 50% starfi á deild.
Búið er að endurbyggja húsið að utan og endurnýja girðingu.  Húsið verður 100 ára á árinu og gert er ráð fyrir að halda upp á það 16. október.

 

3.      Tónskóli Mýrdælinga
Á fundinn eru mætt Kristín Waage og Reynir Þór Finnbogason.

a)      Starfsfólk heilsar upp á nefndina.
Formaður býður Kristínu Waage og Reynir Þór Finnbogason velkomin til starfa.  Gert er ráð fyrir að nýtt húsnæði verði tilbúið í vikulokin.  Gert er ráð fyrir að skráning í skólann fari fram í fyrstu viku september.

 

4.      Ákvörðun fundartíma
Ákveðið að fundir nefndarinnar verði að jafnaði 3ja mánudag í mánuði kl.  17:00

 

 

Fundargerðin lesin og samþykkt.

Fundi slitið kl.  22:30

 

 

_______________________
 Þorgerður Einarsdóttir, form.

 

 

____________________________                ________________________________

Sigrún Guðmundsdóttir                         Bergþóra Ástþórsdóttir

 

 

____________________________                ________________________________

Gísli Sigurðsson                                                Ragnheiður Högnadóttir