|
Fundargerð
97. fundar
skólanefndar Mýrdalshrepps, haldinn á skrifstofu hreppsins Mýrarbraut 13 í
Vík, þriðjudaginn 10. september 2002 kl. 17:00.
Fundinn sátu
undirritaðir aðalmenn skólanefndar ásamt sveitarstjóra. Andrína
Erlingsdóttir mætir í stað Bergþóru Ástþórsdóttur og Sæmunda Ósk Fjeldsted í
stað Sigrúnar Guðmundsdóttur.
Sveitarstjóri
ritaði fundargerðina á tölvu í samræmi við heimild í 23. gr.
sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
Gerðir fundarins:
1.
Grunnskólinn
Á fundinn eru mættar Kolbrún
Hjörleifsdóttir skólastjóri og Victoria Jonsson áheyrnarfulltrúi kennara.
a)
Bréf Sýslumanns V-Skaft
dags. 29. ágúst 2002 og Eyjólfs Sigurjónssonar og Árna Oddsteinssonar dags.
27. ágúst 2002.
Sýslumaður óskar eftir umögn nefndarinnar vegna beiðni þeirra Eyjólfs og
Árna um undanþágu frá þeirri skyldu að merkja bifreiðar sínar sem
skólabifreiðar.
Skólanefnd sér ekki fært að mæla með að undanþága verði veitt.
b)
Skólanámskrá - námshlutar
1. - 10.bekkjar + stundaskrár.
Búið er að senda foreldraráði gögnin til umsagnar. Afgreiðslu frestað þar
til umsögn foreldraráðs liggur fyrir.
c)
Starfsmannamál
Búið er að ráða Berglindi Másdóttur sem skólaliða í fullt starf og Sigríði
K. Einarsdóttur í 50% starf sem aðstoðarkonu í mötuneyti og 50% í ræstingu.
Soffía Magnúsdóttir bætir við sig við ræstingu sem Sigríður Steinþórsdóttir
var með en hún er nú hætt störfum. Eva Dögg Þorsteinsdóttir er ráðin sem
þroskaþjálfi í 50% stöðu, Sigrún Lilja Einarsdóttir er ráðin í 50% starf sem
leiðbeinandi og Anna Björnsdóttir er komin til baka úr launalausu leyfi.
d)
Námsferð til Svíþjóðar –
kynning
Kolbrún gerði grein fyrir námsferð kennara er farin var á liðnu vori og
leggur fram skýrslu um ferðina.
e)
Skólaakstur.
Sveitarstjóra barst í hendur þann 3. september sl. undirskriftalisti frá 10
foreldrum barna í skólaakstri þar sem kvartað er yfir nýju fyrirkomulagi
skólaaksturs og óskað eftir fundi um málið. Fundur var haldinn í skólanum
5. september þar sem fyrirkomulagið var útskýrt og málin rædd.
Nefndin samþykktir að áfram verði unnið skv. núverandi fyrirkomulagi og að
senda foreldraráði skipulagið til umsagnar.
f)
Bréf Menntamálaráðuneytis
dags. 5. júní 2002
Þar kemur fram að skort hefur á
lögbundinn kennslustundafjölda og skóladagafjölda skólaárið 2000-2001.
Skólastjóri upplýsir að um misskilning sé að ræða sem hefur verið leiðréttur
og vísar í fyrri umfjöllun skólanefndar.
g)
Skipulag skólalóðar.
Fyrir liggur teikning Alark arkitekta af fyrirkomulagi skólalóðar norðan
nýbyggingar. Nefndin samþykkir fyrirliggjandi fyrirkomulag fyrir sitt leyti
og samþykkir að senda foreldraráðinu til umsagnar.
2.
Tónskóli Mýrdælinga.
Á fundinn er mætt Kristín Waage
skólastjóri tónskólans.
a)
Skýrsla til skólanefndar
dags. 5. september 2002
60 nemendur hafa skráð sig í skólann. Nokkuð vantar af hljóðfærum, td. tvo
trompeta og 3 - 4 fiðlur. Nokkuð er til af hljóðfærum sem ekki er þörf
fyrir nú td. cornetar. Möguleiki getur verið á að skipta á hljóðfærum sem
ekki þarf á móti öðrum sem vantar. Þá á tónskólinn á í sjóði gjafafé kr.
158.000,-.
Nefndin samþykkir að skipt sé út hljóðfærum sem ekki er þörf fyrir á móti
öðrum sem þörf er á þó þannig að hljóðfæraeign skólans rýrni ekki sem neinu
nemur.
Kristín óskar eftir að fá að kaupa forrit til að skrifa út nótur en það
myndi nýtast bæði fyrir almenna nemendur skólans og einnig fyrir sjónskerta
nemendur þar sem hægt er að prenta út stærri nótur. Hentugt forrit kostar
um kr. 35.000,-
Nefndin samþykkir að keypt séu hljóðfæri og forrit fyrir gjafafé skólans
eftir mati skólastjóra. Ekki er þó gert ráð fyrir að kaupa hljóðfæri fyrir
fullorðna nemendur skólans.
Skólastjóri leggur til að á stundaskrá verði uþb. 1 klst á viku fyrir
“bílskúrsband” og er það samþykkt.
b)
Búnaður tónskólans.
Sjá lið a)
c)
Ákvörðun tónskólagjalda
Fullt gjald ákveðið kr. 13.500 fyrir haustönn. Afslættir og hljóðfæralega
verði með sama sniði og áður. Ákvörðun fyrir vorönn frestað til
fjárhagsáætlunar.
Fundargerðin lesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 19:15
_________________________
Þorgerður Einarsdóttir, form.
____________________________ ________________________________
Sæmunda Ósk Fjeldsted
Andrína Erlingsdóttir
____________________________ ________________________________
Gísli Sigurðsson
Ragnheiður Högnadóttir
|