Vortónleikar Söngfélags Skaftfellinga verða haldnir í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 2. maí 2010 kl. 14.00.
Stjórnandi: Friðrik Vignir Stefánsson
Einsöngvari: Jóna G. Kolbrúnardóttir, sópran
Meðleikarar: Jón Rafnsson, kontrabassi
Vignir Þór Stefánsson, píanó
Matthías Stefánsson, fiðla
Miðaverð kr. 1800
Tónleikagestum er boðið upp á kaffiveitingar í Safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju
að loknum tónleikum.
Svo minnum við á grisjunarnámskeiðið í Heiðmörk í dag kl. 17:30, þeir sem ekki rata upp í reitinn geta mætt upp úr 17:00 við Elliðavatnsbæinn (http://heidmork.is/index.php?option=com_content&task=view&id=12&Itemid=13 ) og fá þá leiðsögn þaðan.
Síðan er næstu viðburðir:
Aðalfundur 6. maí
Hreinsunardagur í Heiðmörk 8. maí.
Ganga um slóðir Guðjóns Samúelssonar í Reykjavík 19. maí
Samkoma í Heiðmörk 29. maí
Nánari upplýsingar um þessi atriði koma á heimasíðuna þegar nær dregur.
Kveðja
Skaftfellingafélagið í Reykjavík