Fimmtudaginn 18. febrúar kl. 20 verður haldin myndasýning í Skaftfellingabúð, Laugavegi 178, fjórðu hæð. Þar verður frumsýnd kvikmynd um selveiðar Fljótshverfinga, tekin af Þrándi Thoroddsen og Jóni Hermannssyni upp úr 1970. Að því búnu verður sýnd upptaka Heiðars Jakobssonar frá 1988 úr sláturhúsinu á Fagurhólsmýri. Eftir hlé sýnir Vigfús G. Gíslason myndir úr gönguferð sinni “Í fótspor forferðranna” um forna götu frá Eyrarbakka austur í Skaftártungu sl. sumar, en hann hefur verið að segja frá þeirri ferð í útvarpinu á Rás 1 milli 9 og 10 á undanförnum laugardagsmorgnum.

 

Aðgangur er ókeypis en seldar eru veitingar í hléi.

 

 

Kveðja

  Skaftfellingafélagið í Reykjavík

  www.skaft.is