Hér er ferðaáætlun Ferðamálafélags Skaftárhrepps fyrir sumarið 2010.  

Það er auðvitað tilvalið fyrir þá sem fjarri búa að flétta ferðunum inn í t.d. sumarfríið !

 

Júní:

9. Kvöldferð: Blesahraun-Geirlandsheiði Fararstjórn: Hjalti Júlíusson Mæting við Skaftárskála kl. 19

27. Dagsferð: Utanfljótsheiðar í Skaftártungu Fararstjórn: Sigurgeir Gíslason Mæting við Hrífunes kl. 10 (Skaftárskála kl. 9:30)

Júlí:

7. Kvöldferð: Álftaversgígar (Hundastrompur, Vellustrompur o.fl.) Fararstjórn: Harpa Jóhannesdóttir og Jóhannes Gissurarson Mæting við Skálm, Álftaversafleggjara kl. 19 (Skaftárskála kl. 18:30)

25. Dagsferð: Skaftárdalur-Skál Fararstjórn: Eiríkur Jónsson og Ingibjörg Eiríksdóttir Akstur innifalinn – skráning fyrirfram; sjá neðar

Ágúst:

4. Kvöldferð: Húsheiði ofan Hörgslands á Síðu Fararstjórn: Anna Harðardóttir

Mæting við Hörgsland kl. 19 (Skaftárskála kl. 18:50)

22. Dagsferð: Botnar – Hnausar Fararstjórn: Júlíana Þóra Magnúsdóttir Akstur innifalinn – skráning fyrirfram; sjá neðar

September:

1. Kvöldferð: Með Brúnum; Hunkubakkar-Klaustur Fararstjórn: Björgvin Harðarson og Björk Ingimundardóttir

Mæting við Hunkubakka kl. 19 (Skaftárskála kl. 18:50)

 

Við hlökkum til að sjá ykkur og ganga saman um fjölbreytt svæðið í góðum félagsskap!

 

Gjald í ferðirnar er almennt kr. 500 og sameinast verður í bíla þar sem það á við. Tvær ferðir þarf að skrá sig í fyrirfram (sjá síma og netfang að neðan) og verður verð þeirra auglýst á www.klaustur.is þegar nær dregur.

Nánari upplýsingar má fá í s. 899-8767 / netf. ferdamalafelag@gmail.com

 

Ferðanefndin (Ólöf Ragna, Unnur og Ingibjörg)

 

Kveðja

  Skaftfellingafélagið í Reykjavík

  www.skaft.is