Ýmislegt er í deiglunni hjá félaginu. Auglýsing um félags sem er verið að stofna austurfrá
1) Næsta laugardag 12. september kl. 10:00 til c.a. 12:00 þá verður dreift kurli í stíga í reitnum í Heiðmörk. Þeir sem hafa möguleika á því eru beðnir að taka með sér hjólbörur og kvíslar. Áætlað er að nokkrir (5-6) fari upp eftir á fimmtudagkvöldið og merki fyrir stígunum. Þeir sem hafa áhuga að mæta þá er beðnir að senda póst á skaft@skaft.is. Að lokinni dreifingu á kurlinu á laugardag þá verður boðið upp á grillaðar pylsur.
2) Fyrsta æfing vetrarins hjá Söngfélaginu er á þriðjudagskvöld 15. september kl. 20:00 í Skaftfellingabúð. Æfingar verða svo áfram á þriðjudagskvöldum í vetur. Stjórnandi kórsins er Friðrik Vignir Stefánsson. Söngglaðir Skaftfellingar eru eindregið hvattir til að koma í kórinn og taka vini og vandamenn með. Söngfélagið er opið öllum og best að vera með frá byrjun vetrar. Upplýsingar gefur Kolbrún Einarsdóttir s: 618 8761.
3) Fyrsti stjórnarfundur vetrarins er áætlaður næsta mánudag og er félagsmenn hvattir til að senda stjórnarmönnum (sjá upplýsingar á heimasíðu) póst eða símtal um það sem þeir vilja koma á framfæri við félagið fyrir næsta starfsár.
4) Búið er veiða nægan feitann fýl þannig að fýlaveislan verður á sínum stað 24. október.
5) Skálmargöngum verður haldið áfram í vetur á laugardögum kl. 11 frá Furulundi í Heiðmörk og gengið í allt að tvo klukkutíma. Á miðvikudögum kl. 19:30 um Elliðaárdal eins og venja hefur verið. Lagt af stað frá Lækjarási (þjálfunarstofnun), Stjörnugróf 7 og gengið í rúman klukkutíma.
Kveðja
Skaftfellingafélagið í Reykjavík