Skaftfellingafélagið og Söngfélagið standa fyrir aðventustund sunnudaginn 6. desember 2009 kl. 15:00 í Skaftfellingabúð, Laugavegi 178.
Söngfélagið syngur nokkur jólalög, bornar verða fram kaffiveitingar og gengið í kringum jólatré. Kristinn Kjartansson spilar á harmoniku, líklega koma jólasveinar í heimsókn.

Borgþór Arngrímsson frá Sólhól á Hornafirði les upp úr Skaftfellskum þjóðsögum.

Aðgangseyrir er kr. 1000 fyrir 17 ára og eldri.   
 
Skaftfellingafélagið er komið á Andlitsbókina: http://www.facebook.com/home.php#/pages/Skaftfellingafelagid-i-Reykjavik/192216194236?ref=ts
 
Minnum á Jólamarkaðinn við Elliðavatn um helgina og næstu helgar:   www.heidmork.is
 
Minnum á þær bækur sem gefnar eru út um þessi jól í tengslum við Skaftfellinga, sumar eru auglýstar á heimasíðunni hjá okkur.

 
Einnig er hægt að nálgast bækurnar “Sótt fram” eftir Sigurð Björnsson Kvískerjum og “Félagsvininn” úr Öræfum með því að senda póst á félagið. Þá hefur útgáfa Eystrahorns á Hornfirði verið endurvakin og þeir sem hafa áhuga að gerast áskrifendur finna upplýsingar um það á heimasíðu Skaftfellingafélagsins.
 
          Skaftfellingafélagið óskar öllum gleðilegra jóla, árs og friðar.