Nýtt fréttabréf er komið á heimasíðuna
www.skaft.is , en er einnig á leiðinni í pósti.
- Vortónleikar Söngfélagsins verða sunnudaginn 10. maí
kl. 14:00 í Seltjarnarneskirkju og í framhaldi af þeim verður vorkaffi
félagsins í safnaðarheimilinu.
Söngfélagið verður einnig með tónleika í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á
Akranesi laugardaginn 9. maí kl. 14:00.
- Aðalfundur félagsins verður fimmtudaginn 14. maí kl.
20:30. Þeir sem hafa áhuga á því að starfa með félaginu eru hvattir til að
mæta, einnig er vel þegið að fá tillögur um nýja stjórnarmenn.
- Hreinsunardagur í Heiðmörk verður 16. maí en dagana
þangað til er ætlunin að nýta til grisjunar og stígagerðar og er um að gera
fyrir Skaftfellinga að fjölmenna næstu helgi (9. og 10. maí) og hjálpa til
við þá vinnu.
- Sumarferð félagsins verður laugardaginn 6. júní.
Kveðja
Skaftfellingafélagið í Reykjavík