Regnboginn
“list í fögru umvherfi”
Helgina 2. – 4. okt. verður haldin menningarveisla í Vík þriðja árið í röð. Með menningarveislunni viljum við koma á fót fjölbreyttri menningardagskrá sem íbúum og gestum er boðið að upplifa og njóta.
Nú stendur undirbúningur Regnbogans sem hæst. Við viljum því hvetja alla íbúa sem vilja koma að dagskránni á einhvern hátt að hafa samband við undirbúningsnefnd.
Í tilefni af hátíðinni langar okkur líka að hvetja íbúa og fyrirtæki Mýrdalshrepps til að lífga upp á umhverfið þessa daga og skreyta bæinn í regnbogalitum. Við hugsum okkur að skipta bænum í fjögur til fimm hverfi og fær hvert hverfi sinn lit. Við látum ykkur vita um skiptinguna þegar nær dregur. Gaman væri að sem flestir dragi íslenska fánann að húni þessa helgi.
Tökum öll þátt í Regnboganum!
„Þar sem kærleikur og snilli taka höndum saman getur þú vænst meistaraverks“ (höf ókunnur)
Undirbúningsnefnd