Kæru Mýrdælingar, nærsveitamenn og gestir

 

Samkvæmt þjóðtrúnni bíður fjársjóður við enda regnbogans og í goðafræðinni er regnboginn ekkert minna en brúin yfir til Ásgarðs, til sjálfra goðanna. Regnbogi er alltaf velkomin sjón, við grípum myndavélarnar, smellum af og börnin benda, sjáðu! Hann er litríkt tákn birtu og vonar, þekkt táknmynd friðar og samvinnu.

            

Við okkar Regnboga bíða gersemar, alveg eins og í sögunum. Þær eru sem betur fer aðgengilegar öllum en ekki faldar eins og fjársjóður þjóðsögunnar. Heimafólk og góðir gestir bjóða til fjölbreyttrar menningarveislu  helgina 2. – 4. október.

 

Í ár er Regnboginn haldinn í þriðja sinn. Hátíðin er að festast í sessi og hefðir farnar að myndast. Tónlist og ljósmyndun  skipa veglegan sess eins og áður, og handverk sömuleiðis. Á tónlistarsviðinu er bryddað upp á merkilegri nýbreytni, það er blásið til Regnbogastjörnunnar – kórakeppni með

útsláttarsniði. Sú keppni verður vafalaust bæði stórskemmtileg og æsispennandi.  Nokkrir kórar hafa skráð sig til leiks, þemað er eurovisionlög, þannig að engum ætti að leiðast!

 

Regnbogamarkaðurinn er önnur nýjung. Þar verður allt milli himins og jarðar til sölu, til dæmis listmunir, handverk, kompudót og grænmeti. Markaðurinn verður fyrir utan Leikskála ef veður leyfir, en inni ef nauðsyn krefur.

 

Dagskrá Regnbogans er glæsileg í ár.  Þar má sjá þekkt nöfn svo sem Vík Prjónsdóttur,
Unu Margréti Jónsdóttur, Stefán Hilmarsson,
Eyjólf Kristjánsson, Jón
Adolf Steinólfsson og marga fleiri í bland við listafólkið okkar.

 

Regnboginn er samsettur úr litum og litir gleðja augað og andann.

Gaman væri ef þorpsbúar skreyttu hús sín og garða í litum regnbogans og drægju íslenska fánann að húni hátíðardagana.

 

Góða skemmtun!

Undirbúningsnefndin