Regnboginn- list í fögru umhverfi
Menningarveisla í Mýrdal 3.-5.október 2008
Undirbúningur er nú í fullum gangi að menningarveislunni Regnboginn - list í fögru umhverfi sem haldin verður í Vík dagana 3.-5. október. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá listviðburða frá föstudegi til sunnudags. Þema að þessu sinni verður 90 ára gosafmæli Kötlu.
Lista- og handverksfólki er hér með boðin þátttaka í veislunni og eru allir þeir sem áhuga hafa beðnir um að snúa sér til undirbúningsnefndar. Fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar sem vilja kynna starfsemi sína þessa helgi með opnu húsi eða uppákomum eru einnig hvattir til að hafa samband við nefndina.
„Þar sem kærleikur og snilli taka höndum saman getur þú vænst meistaraverks“
(höf.ókunnur)
Undirbúningsnefnd;
Sif Hauksdóttir, 862-4368
Anna Björnsdóttir, 865-0307
Guðmundur Pétur, 862-1511
Helga Halldórsdóttir, 849-5498
Sigurður Elías Guðmundsson, 896-0360