Væntanlegir keppendur Raularans þurfa að verða sér úti um umboðsmann sem sér um öll samskipti við keppnishaldara og auglýsingar.
Umboðsmenn skulu auglýsa skjólstæðinga sína undir dulnefni.
Nöfn keppenda eru algjört trúnaðarmál og mega hvorki keppendur né umboðsmenn afhjúpa leyndarmálið fyrr en á sjálfu aðalkvöldinu. Hver umboðsmaður kynnir sinn skjólstæðing þegar til keppni er blásið með tilheyrandi viðhöfn.
Allir eldri en 18 ára geta tekið þátt og engar kröfur eru gerðar um söngkunnáttu.
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 10. Veitt eru verðlaun fyrir besta flytjandann, besta umboðsmanninn og besta búning eða sviðsframkomu.

Haft er eftir einum umboðsmanninum að Raularadagurinn þyrfti að vera lögboðinn frídagur, enda með ólíkindum hvað vinnan slítur í sundur daginn :)   Enda má segja að vikan fyrir keppnina hjá umboðsmönnum snúist um lítið annað.  Víkurþorp hreinlega tekur á sig annan svip.

Einn keppandi hefur tekið þátt í Raularanum öll 11 árin og það er Jónas Erlendsson.  Spurningin er hvort Raulari er Raulari án hans ?
Og þar sem Jónas er ávallt á bak við linsuna vantar alltaf myndir af honum.
Sérstakt andrúmsloft myndast baksviðs milli keppenda þegar á keppni stendur, sem er engu líkt.
Engu að síður er þetta frábær skemmtun og hlakkar undirrituð strax til næsta Raulara.  IS
 

Jóhann Vignir vígalegir

Dizzarar á sviði

Dizzarar lentu í 2. sæti yfir besta flytjandann

Fríður hópur standlampanna eða ljósastauranna eða...

Ljósin hampa umboðsmanninum, Helgu H., sem fékk 2. verðlaun fyrir besta umboðsmanninn.

Ljósin í bænum á sviði

Í pörtum fyrir keppni

Í pörtum fóru á kostum og komu miklu stuði í mannskapinn

Estrella (Lolla) stóð sig vel

Kvaka dú tók dúett úr Andabænum

Dizzarar með umboðsmanni no. 1

Elli umboðsmaður Dizzara fékk 1. verðlaun fyrir besta umboðsmanninn

Umboðsmaður í pörtum

Horft yfir salinn á Höfðabrekku

Sigurvegarar Raularans 2008 sigursælar í pörtum

Stebbi í góðum félagsskap

Siggi Gýmir í dizz stuði

Einn af standlömpum ljósanna í bænum

Dizzarar með umboðsmanni sínum

Flottir barvíkingar stóðu vaktina