Spennan magnast þessa dagana í Mýrdalnum en þann 30. apríl nk. fer fram
söngvakeppnin Raularinn á Hótel Höfðabrekku.
Þetta er í 11. skipti sem þessi
skemmtilega keppni fer fram og alltaf er hún haldin á þessum degi.
Iðulega
leggja menn mikið í gott "show" enda er besta atriðið verðlaunað,
bestu
búningarnir (Besta sviðsframkoman)
og besti umboðsmaðurinn.
Að sjálfsögðu hlýtur sigurvegarinn síðan titilinn
„Besti raularinn“ og ber hann fram að næstu keppni.
Hljómsveitin Granít
hefur spilað undir á öllum Raularakeppnunum auk þess að leika fyrir dansi
eftir keppni. Sunnlenska tók á dögunum hús á gítarleikara hljómsveitarinnar, Sveini
Pálssyni, sveitarstjóra Mýrdalshrepps og forvitnaðist um þessa „stálpuðu“
hljómsveit.
„Þessi hljómsveit er nú komin til ára sinna en þrír af okkur hafa spilað
saman frá því að við vorum unglingar,“ segir gítarleikarinn Sveinn. Með
honum í hljómsveitinni er Bárður Einarsson bassaleikari, Guðmundur Pétur
Guðgeirsson trymbill og Hróbjartur Vigfússon sem einnig leikur á gítar.
„Þetta er nú bara tómstundagaman hjá okkur, þetta er eitthvað sem við gerum
í stað þess að spila bridds yfir vetrartímann. Við höfum spilað á öllum
Raularakeppnunum og einstaka sinnum á öðrum skemmtunum en við gerum þetta
meira okkur til gamans.“
Sveinn segir hljómsveitina vera trúa gamla góða rokkinu en þeir hafi þurft
að fást við mjög fjölbreytt verkefni á Raularakeppnunun.
„Þetta hefur verið
alveg frá gömlum ballöðum yfir í harðkjarna rokk, en við höfum alltaf komist
í gegnum þetta þrátt fyrir einfalda hljóðfæraskipan.
Við áskiljum okkur rétt
til að hafna lögum en höfum aldrei þurft að gera það. Við gerum þetta bara á
okkar hátt og með okkar hljómi og það hefur fallið í góðan jarðveg.
Yfirleitt fáum við ekki langan tíma til að æfa og oft er töluvert á sig lagt
til að ná sumum lögunum en alltaf hefst þetta á endanum.“
Umboðsmennirnir mikilvægir
Kristján Kristjánsson, framkvæmdastjóri Raularans segir umboðsmennina spila
stóra rullu fyrir keppnina, við að kynna sína keppendur. Allir keppendur koma
fram undir dulnefni sem ekki er afhjúpað fyrr en á keppniskvöldinu.
Umboðsmennirnir geta því þurft að leggja mikið í sölurnar til að tryggja sínum
keppendum brautargengi á keppniskvöldinu.
„Þátttaka íbúa sveitarfélagsins hefur ávallt verið góð en að jafnaði eru tíu
atriði í keppninni. Aðsóknin hefur einnig verið góð eða tvöhundruð gestir að
jafnaði. Það verður að teljast gott í byggðalagi sem telur fimm hundruð íbúa,“
segir Kristján Kristjánsson, framkvæmdastjóri Raularans.