Einnig mátti lesa
eftirfarandi á sama vef.
"Helgin hjá íbúum Víkur fór í að bæta skyndihjálparkunnáttuna. Rauða kross
deildin í Vík stóð fyrir þremur námskeiðum. Starfsfólk sundlauganna í Vík og á
Kirkjubæjarklaustri sótti 24 klukkustunda námskeið í Skyndihjálp og björgun.
Síðan var haldið 16 kennslustunda námskeiði í almennri skyndihjálp fyrir aðra
íbúa Víkur og að lokum var námskeið fyrir starfsfólk Vegagerðarinnar.
Þátttakendur voru 37 sem telst vera 12% Víkurbúa. Yngsti þátttakandinn var 14
ára.
Kennt var eftir nýrri bók Skyndihjálp og endurlífgun, þú getur hjálpað þegar á
reynir.
„Þátttakendur voru mjög áhugasamir og mynduðust áhugaverðar umræður,” segir
Vigdís Björk Agnarsdóttir leiðbeinandi. „Hver stund var nýtt til námskeiðahalds
en ég naut þess að vera með þessu skemmtilega fólki og gestristni Rauða kross
deildarinnar í Vík.
Ljósmyndir: Halldóra Gylfadóttir