Áheitasundmaraþon OZ 2010

 

Föstudaginn 12. febrúar nk. ætla unglingarnir okkar í 8. - 10. bekk í Félagsmiðstöðinni OZ að stinga sér í djúpu laugina. Þolraunin hefst kl. 15:00 í sundlauginni í Vík og stendur fram yfir miðnætti.
Gestir og gangandi eru velkomnir í heimsókn til að fylgjast með og hvetja okkar unga fólk til dáða. Maraþonið felst í því að krakkarnir skiptast á að synda stanslaust og ætla að synda samtals 110 km.
Það þýðir 110.000 m sem gera í okkar sundlaug 6.599 ferdir. Hver og einn syndir 5.000 m sem gera 300 ferdir á einstakling. Þessum ferðum verdur síðan skipt niður í 10 sett sem þýðir að hver og einn syndir 30 ferðir í einu eða 500 m í hvert skipti. Hverju sinni synda sex í einu sem gera u.þ.b. 540 ferdir á klst  Þad þýðir að maraþonið mun standa yfir í rúmar 12 klst.

Fimmtudaginn 11. febrúar ganga þau í hús til að safna áheitum

Snúum bökum saman og styðjum krakkana okkar!

Áheit renna óskert í ferðasjóð þeirra.

Sævar Kristjánsson  Íþróttafulltrúi


Myndir frá sundmaraþoni 2008 sem Victor Berg þáverandi íþróttafulltrúi stjórnaði