|
Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki á grunni samnings sveitarfélaga á Suðurlandi og menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis um menningarmál
Við haustúthlutun 2008 verður litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur:
Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi geta sótt um styrki en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Menningarráðið mun ekki veita rekstrar-, stofnkostnaðar- eða endurbótastyrki. Ekki verður heldur styrkt skráning á menningarminjum, starfsemi íþróttafélaga, bæjarhátíðir, almennar samkomur, safnaðarstarf og hefðbundið menningarstarf innan skóla. Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2008. Ætlunin er að tilkynna um úthlutun í október 2008. Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Suðurlands á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á heimasíðu Menningarráðs www.sunnanmenning.is . Hér er einnig að finna stefnu sveitarfélaga á Suðurlandi í menningarmálum og úthlutunarreglur. Allar nánari upplýsingar veitir Dorothee Lubecki, menningarfulltrúi Suðurlands, í síma 480-8207, 896-7511 eða með tölvupósti menning@sudurland.is. Menningarfulltrúi verður til viðtals í öllum sveitarfélögum. Dagsetningar verða tilkynntar á hverjum stað og á heimasiðu Menningarráðs, www.sunnanmenning.is . Umsóknir skal senda, í tölvupósti á menning@sudurland.is eða í ábyrgðarpósti, til Menningarráðs Suðurlands, Austurvegi 56, 800 Selfoss. |